Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, hefur látið af störfum.
Þetta staðfestir hann í samtali við mbl.is en hann segir að hann hafi verið boðaður á fund hjá dómsmálaráðherra og ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins í gær þar sem honum var tilkynnt að staða hans yrði auglýst þegar skipunartími hans sem lögreglustjóra rynni út, sem er 16. nóvember nk.
Segir hann að þegar það lá fyrir hafi hann óskað eftir að hann yrði leystur frá störfum strax. Ráðuneytið gekk frá starfslokum Úlfars í morgun.
Hann segir að ákvörðun ráðherrans hafi komið sér í opna skjöldu.
Var sátt á milli ykkar að loknum fundinum?
„Ég held að ákvörðun mín [um að óska eftir starfslokum] segi til um niðurstöðu þessa fundar,“ segir Úlfar. Hann kveðst ekki koma til með að starfa aftur hjá lögreglunni á Íslandi.