Úlfar hættir sem lögreglustjóri

Úlfar var boðaður á fund dómsmálaráðherra í gær.
Úlfar var boðaður á fund dómsmálaráðherra í gær. mbl.is/Óttar

Úlfar Lúðvíks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á Suður­nesj­um, hef­ur látið af störf­um. 

Þetta staðfest­ir hann í sam­tali við mbl.is en hann seg­ir að hann hafi verið boðaður á fund hjá dóms­málaráðherra og ráðuneyt­is­stjóra dóms­málaráðuneyt­is­ins í gær þar sem hon­um var til­kynnt að staða hans yrði aug­lýst þegar skip­un­ar­tími hans sem lög­reglu­stjóra rynni út, sem er 16. nóv­em­ber nk.

Seg­ir hann að þegar það lá fyr­ir hafi hann óskað eft­ir að hann yrði leyst­ur frá störf­um strax. Ráðuneytið gekk frá starfs­lok­um Úlfars í morg­un. 

Hann seg­ir að ákvörðun ráðherr­ans hafi komið sér í opna skjöldu. 

Var sátt á milli ykk­ar að lokn­um fund­in­um?

„Ég held að ákvörðun mín [um að óska eft­ir starfs­lok­um] segi til um niður­stöðu þessa fund­ar,“ seg­ir Úlfar. Hann kveðst ekki koma til með að starfa aft­ur hjá lög­regl­unni á Íslandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert