Vegið að undirstöðum safnastarfs

Þjóðminjasafn Íslands.
Þjóðminjasafn Íslands. Ljósmynd/Gísli Sigurðsson

Stjórn Fé­lags ís­lenskra safna- og safna­fólks (FÍSOS) harm­ar ákvörðun Þjóðminja­safns Íslands um að leggja niður stöður sér­fræðinga á kjarna­sviði safns­ins en fjór­um starfs­mönn­um safns­ins var sagt upp í síðustu viku.

Í álykt­un frá FÍSOS vegna máls­ins kem­ur fram að um sé að ræða mik­il­væg­ar stöður þar sem verk­efn­in hafa ekki aðeins snúið að innra starfi Þjóðminja­safns Íslands held­ur allra menn­ing­ar­minja­safna lands­ins og minja­vörslu á öllu land­inu.

Í álykt­un­inni seg­ir að hlut­verk Þjóðminja­safns Íslands sem höfuðsafns sé sam­kvæmt lög­um að stuðla sem best að varðveislu ís­lenskra menn­ing­ar­minja og miðla sögu þjóðar­inn­ar og að eft­ir upp­sagn­ir lyk­il­starfs­manna á kjarna­sviði vakni spurn­ing­ar um hvernig safnið hyggst upp­fylla þess­ar laga­legu skyld­ur sín­ar.

Skjóti skökku við

Þá er bent á að Þjóðminja­safn Íslands sé há­skóla­stofn­un sem á að efla rann­sókn­ir á menn­ing­ar­arf­in­um og að því skjóti það skökku við að skorið skuli niður meðal sér­hæfðs vís­inda­fólks safns­ins.

„Stjórn Fé­lags ís­lenskra safna- og safna­fólks bein­ir þeim til­mæl­um til stjórn­valda að tryggja höfuðsafni þjóðminja, Þjóðminja­safni Íslands, nægj­an­legt rekstr­ar­fé til að það geti sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu og hafi svig­rúm til að breikka sér­fræðiþekk­ingu inn­an starfs­manna­hóps­ins án þess að þurfa að grípa til upp­sagna annarra sér­fræðinga.

Safna­störf eru sér­hæfð störf sem krefjast víðtækr­ar þekk­ing­ar og reynslu. Þjóðminja­safn Íslands hef­ur ákveðnu for­ystu- og stuðnings­hlut­verki að gegna í ís­lensku safna­sam­fé­lagi og með fækk­un sér­fræðinga er vegið að und­ir­stöðum safn­a­starfs, ekki bara Þjóðminja­safns­ins, held­ur einnig allra safna á land­inu.

Stjórn Fé­lags ís­lenskra safna- og safna­fólks skor­ar á stjórn­völd og Þjóðminja­safn Íslands að standa vörð um mik­il­vægt innra starf safna því til­vist og starf þeirra bygg­ir að öllu leyti á sterk­um fag­leg­um grunni,“ seg­ir í álykt­un­inni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert