Vindstrengir varasamir húsbílum og hjólhýsum

mbl.is/kbl

Bú­ast má við all­hvöss­um vind­strengj­um á Snæ­fellsnesi í dag, að því er fram kem­ur í at­huga­semd veður­fræðings á vef Veður­stofu Íslands.

„Slík­ur vind­ur get­ur verið vara­sam­ur öku­tækj­um sem eru viðkvæm fyr­ir vindi, eins og t.d. hús­bíl­um og hjól­hýs­um.“

Í dag verður suðlæg eða breyti­leg átt, 3-8 metr­ar á sek­úndu og yf­ir­leitt létt­skýjað en 8-15 metr­ar á sek­úndu norðvest­an til, hvass­ast verður á Snæ­fellsnesi. Það þykkn­ar upp vest­an­lands í kvöld.

Allt að 20 stiga hiti

Á morg­un má bú­ast við suðaust­an 5-13 metr­um á sek­úndu og skýjuðu með köfl­um í fyrra­málið, hvass­ast við suðvest­ur­strönd­ina, en víða létt­skýjað síðdeg­is.

Hiti verður á bil­inu 11 til 20 stig að deg­in­um, hlýj­ast verður norðaust­an til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert