Hiti mældist 24,2 gráður á Egilsstaðaflugvelli í dag. Hvergi á landinu hefur mælst meiri hiti það sem af er degi.
Í dag var spáð suðaustan 5-13 m/s og skýjað með köflum en víða léttskýjað síðdegis. Spáð var hita á bilinu 10 til 18 stig en nú hefur komið í ljós að töluvert hærri tölur sáust á Austurlandi.
Minnsti hitinn á landinu það sem af er degi mældist á Fáskrúðsfirði, eða 0,2 gráður.