Andlát: Þorsteinn Vilhjálmsson

Þorsteinn Vilhjálmsson.
Þorsteinn Vilhjálmsson.

Þor­steinn Vil­hjálms­son, pró­fess­or emer­it­us í eðlis­fræði og vís­inda­sögu, lést á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans í Kópa­vogi 10. maí sl., 84 ára að aldri.

Þor­steinn fædd­ist í Reykja­vík 27. sept­em­ber 1940. For­eldr­ar hans voru Vil­hjálm­ur Þor­steins­son og Krist­ín María Gísla­dótt­ir.

Þor­steinn gekk í Mela­skóla og varð stúd­ent og dúx frá MR 1960 og hélt þá til náms í eðlis­fræði við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Að loknu grunn­námi var hann í fram­halds­námi við Niels Bohr-stofn­un­ina og lauk cand. scient.-prófi í eðlis­fræði árið 1967. Þá starfaði hann í tvö ár við Nordita, nor­rænu rann­sókn­ar­stofn­un­ina í kenni­legri eðlis­fræði.

Árið 1969 hóf hann störf á Raun­vís­inda­stofn­un HÍ, varð lektor í eðlis­fræði 1971, dós­ent 1978 og pró­fess­or í eðlis­fræði og vís­inda­sögu 1989. Hann var for­seti raun­vís­inda­deild­ar 1995-1997. Auk eðlis­fræðinn­ar hóf hann kennslu í sögu og heim­speki vís­inda um 1980. Hann hafði mik­inn áhuga á til­hög­un há­skóla­kennslu og var formaður kennslu­mála­nefnd­ar Há­skóla Íslands 1985-1992. Hann var aðal­rit­stjóri Orðaskrár Eðlis­fræðifé­lags­ins sem kom út árið 1996.

Þor­steinn hafði veg og vanda af stofn­un Vís­inda­vefs HÍ árið 2000 og var aðal­rit­stjóri hans 2000-2010. Árið 2005 fékk hann sér­staka viður­kenn­ingu mennta­málaráðuneyt­is­ins fyr­ir störf sín að vís­inda­miðlun og var síðan til­nefnd­ur til Descartes-verðlauna ESB. Þor­steinn hlaut ridd­ara­kross fálka­orðunn­ar árið 2011 fyr­ir fram­lag til vís­inda, kennslu og miðlun­ar fræðilegr­ar þekk­ing­ar til al­menn­ings.

Þor­steinn hafði mik­inn áhuga á þjóðmál­um og tók þátt í starfi Alþýðubanda­lags­ins. Um­hverf­is- og auðlinda­mál voru hon­um hug­leik­in. Var m.a. formaður staðar­vals­nefnd­ar fyr­ir orku­frek­an iðnað um tíma.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Þor­steins er Sigrún Júlí­us­dótt­ir, f. 1944. Son­ur þeirra er Viðar, f. 1979. Áður var Þor­steinn gift­ur Ingi­björgu Björns­dótt­ur, f. 1940, börn þeirra eru Vil­hjálm­ur, f. 1965, Björn, f. 1967, og Þór­dís Katrín, f. 1971. Son­ur Sigrún­ar og upp­eld­is­son­ur Þor­steins er Orri Vé­steins­son, f. 1967. Barna­börn­in eru 12 tals­ins og langafa­börn­in tvö.

Útför Þor­steins fer fram í Frí­kirkj­unni í Reykja­vík fimmtu­dag­inn 22. maí klukk­an 13.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert