Bænum gert að farga húsinu á kostnað eiganda

Heilbrigðiseftirlitið hefur fyrirskipað rif húsnæðis sem eigandi þess, Hilmar Daníel …
Heilbrigðiseftirlitið hefur fyrirskipað rif húsnæðis sem eigandi þess, Hilmar Daníel Valgeirsson, segir að muni keyra hann í gjaldþrot. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Aðsent

Send verður krafa á sveit­ar­fé­lagið Fjalla­byggð af heil­brigðis­eft­ir­liti Vest­ur­lands (HNV) þess efn­is að bæj­ar­fé­lagið fargi því sem eft­ir stend­ur af húsi við Aðal­götu 6b á Sigluf­irði sem skemmd­ist í óveðri í sept­em­ber 2023.

Öðrum íbú­um þykir stafa hætta af hús­næðinu vegna ótryggs ástands þess. Meðal ann­ars fuku þak­plöt­ur af hús­inu á önn­ur mann­virki í fe­brú­ar.

Eig­andi húss­ins, Hilm­ar Daní­el Val­geirs­son, bjó í hús­inu sem er um 600 fer­metr­ar að stærð. Hann ræddi við mbl.is á dög­un­um og lýsti því að förg­un­in væri of kostnaðar­söm fyr­ir hann og gjaldþrot blasi við. Hann bjó í hús­inu þegar óveðrið skemmdi það og sök­um þess að um foktjón var að ræða fékk hann enga hjálp frá trygg­ing­um. Lagði hann til að sveit­ar­fé­lagið yf­ir­tæki lóðina gegn því að farga hús­inu en Fjalla­byggð hafnaði því.

Húsnæðið er illa farið.
Hús­næðið er illa farið. Ljós­mynd/​Aðsend

Kærði heil­brigðis­eft­ir­litið 

Heil­brigðis­eft­ir­litið hafði áður sent er­indi á bæ­inn þar sem þess var kraf­ist að húsið yrði fjar­lægt en Hilm­ar kærði HNV til úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála og óskaði þess að ákvörðunin yrði dreg­in til baka. Úrsk­urður féll í gær. Ekki var orðið við ósk hans um ógild­ingu ákvörðun­ar­inn­ar.

Hef­ur haft eitt og hálft ár 

Sig­ríður Hjalta­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri HNV, seg­ir að næstu skref verði að hafa sam­band við Fjalla­byggð og þess kraf­ist að hús­inu verði fargað á kostnað Hilm­ars. Hún seg­ir auðvelt að sýna aðstöðu Hilm­ars sam­kennd en það breyti ekki niður­stöðu máls­ins.

„Hann hef­ur fengið eitt og hálft ár til þess að taka á þessu. Við mun­um fyr­ir­skipa sveit­ar­fé­lag­inu að rífa þetta og koma þessu í lög­lega förg­un á kostnað eig­anda. Svo verður bara að koma í ljós hvort eig­and­inn sé borg­un­ar­maður fyr­ir þessu,“ seg­ir Sig­ríður.

Kvik­mynda­fyr­ir­tæki nýtti húsið 

Hún seg­ir að fyr­ir­skip­un­in hafi áður verið send en fram­kvæmd förg­un­ar frestaðist eft­ir að kvik­mynda­fyr­ir­tæki fékk að nýta húsið til að taka upp mynd um snjóflóð. Eins var niðurstaða úr­sk­urðar­nefnd­ar ókom­in. 

„Það átti það ekki að hafa áhrif á rétt­ar­ákvörðun er­ind­is­ins en auðvitað hinkruðum við á meðan þetta var í gangi. Við höf­um ekk­ert farið offari í þessu máli,“ seg­ir Sig­ríður. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert