Ross Edgley, 39 ára sundkappi frá Bretlandi, hyggst synda 1.600 km hringinn í kringum Ísland. Mikill undirbúningur hefur farið í verkefnið og leggur hann af stað á föstudag. Áætlað er að sundið gæti tekið allt frá þremur mánuðum til fimm.
Edgley hefur stundað sund frá unga aldri og spilaði einnig lengi vel vatnsknattleik. Hann segist þó hafa gert sér grein fyrir því snemma að hann hefði ekki hæðina í þá íþrótt og fært sig í kjölfarið yfir í sjósund.
„Þar skiptir hæðin ekki eins miklu máli heldur frekar hversu þrjóskur og ákveðinn þú ert,“ segir hann í samtali við blaðamann mbl.is.
Undanfarna mánuði hefur Edgley staðið í ströngu við undirbúning sundsins með sérstöku mataræði og þjálfunarplani. Á hverjum degi innbyrðir hann í kringum 10.000 kaloríur ásamt því að synda í allt að 12 tíma á dag. Edgley hefur þyngst um tæp 15 kíló frá því að undirbúningur hófst og segir hann markmiðið vera að ná að þyngjast sem mest en á sama tíma halda sér í góðu formi.
Síðustu mánuði hefur hann verið við æfingar í Skotlandi og í febrúar kom hann hingað til landsins og synti við Vestfirði.
„Ég kom hingað í febrúar og byrjaði að æfa þá. Þá var vetur og það var ótrúlega kalt en ég fékk að sjá norðurljósin og það var æðislegt,“ segir Edgley glaður í bragði.
Edgley hefur áður tekið að sér erfið verkefni í sundinu eins og þegar hann synti hringinn í kringum Stóra-Bretland árið 2018. Sundið í kringum Ísland segir hann þó vera erfiðasta áskorunina hingað til.
Verkefnið gæti tekið allt frá þrem mánuðum til fimm en Edgley segir að það sé allt í höndum veðurguðanna.
„Það gæti komið stormur, mikill öldugangur eða vindur og þá kemst maður einfaldlega ekki áfram svo ég þarf bara að vona að það verði gott veður“.
Hvernig lítur týpískur dagur út í ferðinni?
„Maður syndir með öldunum í sex tíma og svo breytist áttin á þeim og þá fer maður í bátinn til að borða og sofa. Síðan breytist áttin aftur og þá þarf maður að stökkva ofan í, sama hvort klukkan sé tvö um nótt eða tvö um dag, maður þarf að synda þegar öldurnar eru að vinna með manni. Þetta eru í raun tvö sex tíma sund á dag.“
Á bátnum verða allar nauðsynjar sem Edgley mun þurfa ásamt átta manna áhöfn.
Hann segir markmiðið vera að sigla eins mikið og hægt er til að hafa sem minnst neikvæð áhrif á umhverfið, þess vegna sé mikilvægt að það séu svona margir að vinna á bátnum til þess að geta skipst á.
Hvenær ákvaðst þú að þú vildir láta reyna á þetta?
„Það er ár síðan ég ákvað að keyra á þetta og byrja æfingar en það eru rúm fimm ár síðan ég fékk hugmyndina. Eftir sundið í kringum Stóra-Bretland fór ég að skoða landakort til að ákveða næsta stað. Þá fór ég að ræða þetta við vin minn, Chris Hemsworth, sem leikur þrumuguðinn Þór í Marvel-myndunum og talið barst að norrænu þjóðsögunum sem ég er virkilega hrifinn af. Þá sagði Chris að þetta væri það næsta sem ég kæmist að Ásgarði og ég heillaðist strax af þessu.“
Háskóli Íslands og Hafrannsóknastofnun höfðu samband við Edgley og mun hann nýta ferðina til þess að safna lífsýnum úr sjónum (eDNA) á leiðinni. Markmiðið með því sé að ná að skoða líffræðilegan fjölbreytileika í kringum landið.
Aðspurður hvort hann hræðist ekki dýralífið við strendur Íslands segist hann ekki gera það.
„Ég er að vona að ég nái að sjá bæði Grænlandshákarl og beinhákarl sem eru þekktir fyrir að vera vinalegir. Síðan þegar ég kom hingað í febrúar hitti ég á seli sem syntu með mér og tóku mig að sér. Ég er að vona að ég hitti þá aftur.“
Á bátnum verður myndatökumaður sem tekur upp myndskeið sem birt verða á Youtube alla sunnudaga. Þá mun hann einnig vera virkur á Tiktok og Instagram yfir ferðina.
Edgley segir mikilvægt að vera virkur á samfélagsmiðlum því að markmið ferðarinnar sé líka að kynnast fólkinu og menningunni á Íslandi og að með því móti veki þeir athygli á sér og eigi auðveldara með að tengjast fólki hvaðanæva að.
Hægt er að nálgast hann á samfélagsmiðlum undir notandanafninu Ross Edgley.
Edgley segist afar þakklátur Íslendingum fyrir móttökurnar sem hann hefur fengið frá því að hann kom til landsins.
„Ég veit að ég er skrýtinn Breti sem kom hingað í þeim tilgangi að synda í kringum landið ykkar en allir hafa tekið svo vel á móti mér. Þetta eru forréttindi og ég er afar þakklátur.“
Eins og fram hefur komið hefst sundið á föstudag og verður hægt að fylgjast með staðsetningu kappans meðan á því stendur hér.