„Þessar tillögur leysa ekki málið og næstu árin verða húsin áfram byggð með fúski. Með þessu er verið að þyrla upp ryki og skapa óvissu inn á byggingarmarkaðinn sem er akkúrat það sem hann þarf ekki á að halda,“ segir Böðvar Ingi Guðbjartsson, formaður Félags pípulagningameistara, um vegvísi HMS.
Hann segir að hér sé stöðugt verið að flytja inn vinnuafl í húsbyggingar sem hefur ekki verkþekkingu, og þar liggi vandinn.
„HMS hefur ekki sinnt sínu lögboðna eftirliti og getur ekki varpað sökinni á aðra. Stofnunin á að vera fyrir löngu búin að stíga inn og kalla þá verktaka að borðinu sem skila frá sér verkum sem eru í ólagi.“
Böðvar segir að eftir kynningu HMS og lestur vegvísisins vakni fleiri spurningar en svör og honum finnist ómaklega vegið að byggingarstjórum sem viti ekkert hvað eigi að gera í stöðunni.
Björgvin Víglundsson verkfræðingur segist vera sammála því sem fram kemur í vegvísi HMS, að byggingaraðilinn eigi að bera alla ábyrgð.
„Það gefur augaleið að byggingarstjórinn getur ekki fylgst með hverju handtaki starfsmannsins. Byggingarstjórinn er háður verktakanum því hann borgar honum launin. Ef byggingarstjórinn er of harður er nýr ráðinn í staðinn. Það þarf að treysta á fagmanninn og ef hann er ekki til staðar er ekki von á góðu.“
Hann segist ekki vita hvað sé átt við með óháðum skoðunarstofum.
„Byggingaraðilinn borgar þeim og eru þær þá óháðar?“
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.