„Enginn í áskrift að embættum“

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra seg­ir að ástæða þess að Úlfari Lúðvíks­syni, frá­far­andi lög­reglu­stjóra á Suður­nesj­um, var til­kynnt um að staða hans yrði aug­lýst til um­sókn­ar sé fyr­ir­huguð breyt­ing á landa­mærapóli­tík.

Þannig verður embættið stækkað og verk­efni munu breyt­ast. Til stend­ur að setja á fót brott­far­ar- og komu­stöð. Í því skyni verður heim­fara­deild lög­reglu­stjóra færð til Suður­nesja.

„Verk­efni embætt­is­ins er að taka tölu­verðum breyt­ing­um og að stækka tölu­vert. Ég fór því yfir það með lög­reglu­stjór­an­um á Suður­nesj­um að breytt verk­efni og stækk­un um­fangs embætt­is­ins væri ástæða aug­lýs­ing­ar en ekki þannig að í því fæl­ist ein­hver afstaða til hans starfa, nema síður væri,“ seg­ir Þor­björg.

Seg­ir áhersl­ur þeirra fara sam­an 

Úlfar hef­ur verið op­in­skár um vanda­mál á landa­mær­un­um. Spurð hvort eitt­hvað í orðum hans um þau mál­efni hafi haft áhrif á ákvörðun stjórn­valda um að setja hann til hliðar seg­ir Þor­björg svo ekki vera.

„Nei, alls ekki. Við höf­um meðal ann­ars lagt fram frum­varp sem skyld­ar flug­fé­lög til að gefa upp farþegalista. Ég hef sömu­leiðis lagt fram frum­varp um end­ur­heimt fjár­hags­legs ávinn­ings af skipu­lagðri brot­a­starf­semi. Þannig að ég hef verið að stíga af­ger­andi skref gegn skipu­lagðri brot­a­starf­semi. Þetta finnst mér und­ir­strika og ramma inn að þessi ákvörðun um að aug­lýsa embættið fel­ur ekki í sér á nokk­urn hátt af­stöðu mína til Úlfars. Mér sýn­ist við ganga ágæt­lega hönd í hönd hverj­ar áhersl­urn­ar eru. Mér fannst bara eðli­legt að aug­lýsa stöðuna. Hon­um var vel­komið að sækja um hana eins og öðrum. En það er eng­inn í áskrift að embætt­um,“ seg­ir Þor­björg.

Eng­in skoðana­skipti 

En er ekki eðli­legt að hann líti svo á að hann sé ekki æski­leg­ur um­sækj­andi ef hon­um er til­kynnt um málið með þess­um hætti?

Hann brást við með þess­um hætti og ég get ekki annað en virt það,“ seg­ir Þor­björg.

Voru ein­hver skoðana­skipti á fund­in­um með Úlfari?

„Nei.“

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert