Enginn vítissódi fer í sjóinn í Hvalfirði

Ekki verður af því að vítissóda verði dælt út í …
Ekki verður af því að vítissóda verði dælt út í Hvalfjörðinn. mbl.is/Sigurður Bogi

„Þarna bend­ir ut­an­rík­is­ráðuneytið á að það sé eng­inn lag­arammi til um þess­ar rann­sókn­ir og það er ná­kvæm­lega það sem ég hef verið að segja um þetta mál að und­an­förnu,“ seg­ir Har­ald­ur Ei­ríks­son, eig­andi Hökla ehf., leigu­taka Laxár í Kjós, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Hann hef­ur verið í for­svari fyr­ir þá sem hafa verið and­víg­ir áform­um Rast­ar sjáv­ar­út­vegs­set­urs ehf. sem óskaði leyf­is til að dæla 200 tonn­um af upp­leyst­um vít­is­sóda í sjó­inn í Hval­f­irði. Ut­an­rík­is­ráðuneytið hafnaði um­sókn Rast­ar þar um og seg­ir í bréfi til fyr­ir­tæk­is­ins að ástæðan sé sú að ís­lensk stjórn­völd hafi hvorki mótað sér stefnu né sett reglu­verk um þá teg­und aðgerða sem fyr­ir­hugað væri að rann­saka, þ.e. lofts­lags­verk­fræðileg­ar aðgerðir til að draga úr kol­díoxíði í and­rúms­lofti. 

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert