Karlmaður hlaut á föstudaginn fimm mánaða skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot í nánu sambandi þar sem honum var gefið að sök að hafa „endurtekið og á alvarlegan hátt með ofbeldi og hótunum, ógnað lífi, heilsu og velferð fyrrverandi sambýliskonu sinnar.
Hafði háttsemi mannsins meðal annars falist í því að veitast með ofbeldi og ógnunum að konunni og kasta henni á gluggakistu í íbúðinni með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á baki, en fram kemur í málsgögnum, er lögð voru fyrir dóminn, að konan óttaðist um líf, heilsu og velferð sína.
Meðal annarra ákæruatriða má nefna að ákærða var borið á brýn að hafa eitt skiptið tekið um olnboga sambýliskonunnar fyrrverandi, hent henni í gólfið, öskrað á hana og verið ógnandi í framkomu. Er henni auðnaðist að leita skjóls á baðherbergi íbúðarinnar og læsa að sér braust ákærði inn í herbergið, öskraði á hana og sýndi enn af sér ógnandi framkomu auk þess að veitast að fórnarlambi sínu og veita því töluverða áverka er tíundaðir eru í dóminum.
Lögðu lögreglumenn, heimilislæknir og fleiri vitni skýrslur sínar fram fyrir dómi og þótti dómara sannað að ákærði hefði gerst sekur um framangreind brot gegn sambýliskonunni fyrrverandi svo óyggjandi þætti.
Auk áðurnefndrar fimm mánaða refsingar skilorðsbundinnar var ákærða gert að greiða konunni 860.000 krónur með vöxtum auk þriggja fjórðu hluta af málsvarnarlaunum skipaðs verjanda síns, sama hlutfalls af þóknun réttargæslumanns brotaþola, útlagðan kostnað réttargæslumanns og rúmar 20.000 krónur í annan sakarkostnað.