Íbúar í Grímsey fundu vel fyrir öflugum skjálfta sem reið yfir snemma í morgun. Þeir virðast þó ekki kippa sér mikið upp við skjálftann, enda í raun kannski orðnir skjálftum vanir á eyjunni.
mbl.is sló á þráðinn til nokkurra íbúa í kjölfar skjálftans til að sjá hvernig þeim líst á blikuna.
Anna María Sigvaldadóttir segist hafa hrokkið upp í morgun er skjálftinn reið yfir.
„Við heyrum meira bara svona drunur og svo kemur svona pínu skellur. Það er allavega okkar upplifun í þessu húsi. En svo er þetta auðvitað misjafnt á milli húsa,“ segir hún í samtali við mbl.is.
Það hafa ekki fylgt þessu neinar skemmdir eða slíkt?
„Nei, nei. Þetta er bara smotterí.“
Þið eruð kannski orðin vön þessu?
„Já, sumir eru auðvitað smeykir við þetta, sem er bara eðlilegt. En eins og ég segi, ég bara vaknaði og svo fór ég aftur að sofa nokkrum mínútum seinna,“ segir Anna María og bætir við:
„Ég er með hund hérna og hann vaknaði ekki einu sinni við þetta.“
Nágranni Önnu Maríu, Ragnhildur Hjaltadóttir, hefur svipaða sögu að segja. Hún hafi meira orðið var við drunu í húsi sínu frekar en hristing. Hún hafi svo ekki fundið fyrir neinum eftirskjálftum.
„Þetta raskar ekki ró okkar. Auðvitað væri maður til í að sleppa þessu en þetta er ekkert sem veldur manni andvöku.“
Þá nefnir hún að skjálftar sem finnist af og til á eyjunni séu ekkert miðað við ofsaveðrin sem herji á eyjuna af og til.
„Mér finnst þessir skjálftar vera bara lítið miðað við rok og brjáluð veður.“
Þorgerður Guðrún Einarsdóttir sat á kaffistöðu vinnustaðar síns er mbl.is náði af henni tali og var þar skjálfti morgunsins einmitt til umræðu á meðal kollega.
„Við vöknuðum allavega öll við hann. Hann var svona ansi sterkur. Ég vaknaði reyndar líka við skjálftann í fyrrinótt en þessi virkaði dálítið lengri og stærri.“
Veldur þetta einhverjum ugg þegar þetta fer svona í gang?
„Nei, veistu, ég er afskaplega róleg. Ég er nú búin að búa hérna allt mitt líf og er orðin 66 ára gömul þannig að maður er ýmsu vanur,“ segir Þorgerður og bætir við:
„Við erum öll pollróleg. Það er ekkert vandamál hér.“
Gylfi Gunnarsson var glaðvakandi og mættur til vinnu er skjálftinn varð í morgun. Sjálfur segist hann frægur á eyjunni fyrir óþol sitt í garð jarðskjálfta.
„Ég finn fyrir öllum jarðskjálftum. Mér finnst þetta djöfulsins óhugnaður,“ segir Gylfi og nefnir jafnframt að skjálftarnir venjist aldrei.
Eru búnir að vera einhverjir eftirskjálftar?
„Jú, jú, bara eitthvað svona smá helvítis klór. Ekki neitt þannig.“
Og það eru allir svona frekar rólegir yfir þessu heyrist mér.
„Já, já. Ef ég er rólegur þá er það pottþétt að hinir eru rólegir.“