Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöld og í nótt. Einn var handtekinn grunaður um frelsissviptingu og líkamárás í hverfi 101 og er málið til rannsóknar.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gærkvöld til klukkan 5 í morgun.
Rafskútuslys varð í hverfi 104. Ökumaður rafskútunnar var fluttur með sjúkraliði af vettvangi með minniháttar meiðsli.
Lögreglustöð 2, sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ, fékk tilkynningu um slagsmál í strætóskýli. Gerandi og brotaþoli farnir af vettvangi er lögreglu bar að. Þá voru ungmenni til vandræða á Völlunum en þau voru sögð stunda það að sparka í útidyrahurðir fólks í hverfinu.
Tilkynnt um aðfinnsluvert háttalag farþega bifreiðar í hverfi 109. Lögregla kom að bifreiðinni kyrrstæðri og gaf sig á tal við farþegana, sem reyndust allir vera undir áhrifum fíkniefna og báru þeir allir fíkniefni á sér. Farþegarnir því kærðir fyrir vörslu fíkniefna.