Líkfundur milli Viðeyjar og Engeyjar

Líkið fannst á milli Engeyjar og Viðeyjar. Mynd úr safni.
Líkið fannst á milli Engeyjar og Viðeyjar. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lík fannst í sjón­um á milli Eng­eyj­ar og Viðeyj­ar í gær­kvöldi. Ásgeir Þór Ásgeirs­son, aðstoðarlög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu, staðfest­ir þetta í sam­tali við mbl.is. 

Til­kynn­ing barst lög­reglu rétt eft­ir klukk­an níu í gær­kvöldi frá vitn­um en vinna er nú í gangi við að bera kennsl á líkið og rann­saka til­drög þess að maður­inn lenti í sjón­um. RÚV sagði fyrst frá.

Ásgeir gat ekki veitt frek­ari upp­lýs­ing­ar um málið að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert