Nokkur tæpitungulaus ummæli Úlfars

Úlfar Lúðvíksson, hefur látið af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Úlfar Lúðvíksson, hefur látið af störfum sem lögreglustjóri á Suðurnesjum. Samsett mynd

Úlfar Lúðvíks­son, frá­far­andi lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, hef­ur sett svip sinn á þjóðlífið í embætti sem lög­reglu­stjóri Suður­nesja. Er hann þekkt­ur fyr­ir að tala tæpi­tunglu­laust um það sem hon­um ligg­ur á hjarta.

Ekki síst hef­ur hann ávarpað þau vanda­mál sem hann tel­ur þjaka landa­mæra­vörslu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Þannig hef­ur hann ljáð máls á inn­flutt­um glæpa­mönn­um og mis­notk­un á út­lend­inga­lög­um auk þess að taka af­ger­andi ákv­arðanir í aðgeng­is­mál­um í Grinda­vík í tengsl­um við eld­gos. Fjöl­miðlamönn­um til nokk­urs ama.

Ekki skyldug til að hýsa glæpa­menn 

Meðfylgj­andi eru nokk­ur um­mæli Úlfars sem öll bera vott um af­drátt­ar­lausa af­stöðu hans: 

Um­mæli í Dag­mál­um í apríl um hýs­ingu glæpa­manna:

„Við göng­um inn í Schengen-sam­starfið 2001. Yfir langt ára­bil eða tíma­bil hef­ur lög­gæsla ekki verið sem skyldi á innri landa­mær­um á Kefla­vík­ur­flug­velli. Við erum að sjá markverða breyt­ingu núna á síðustu árum. Þetta hef­ur ekki verið nægi­lega gott og það er í raun og veru ekk­ert í reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins eða ís­lensku reglu­verki sem skyld­ar okk­ur til þess að hýsa hér glæpa­menn,“ sagðiÚlfar Lúðvíks­son.

Mis­notk­un út­lend­ingalaga 

Um­mæli í nóv­em­ber 2024 við Morg­un­blaðið um mis­notk­un út­lend­ingalaga:

„Telja má nokkuð víst að út­lend­inga­lög hér á landi séu mis­notuð, ekki með ósvipuðum hætti og menn mis­nota önn­ur kerfi vel­ferðarrík­is­ins.“

Um­mæli Úlfars á mbl.is í sept­em­ber í grein um unga menn sem koma hingað til lands til að fremja glæpi.

„Vanda­mál Dana hvað þessi gengi varðar eru grafal­var­leg.“

Vond skila­boð 

Úlfar Lúðvíks­son á mbl.is í fe­brú­ar 2024 um fjöl­miðlamann frá RÚV sem sást á mynd­bandi taka í hurðahún á heim­ili í Grinda­vík og notaði það sem ástæðu til að loka á frétta­menn í bæn­um.  

„Þetta voru vond skila­boð inn í sam­fé­lagið og þessi ein­stak­ling­ur skemmdi klár­lega fyr­ir öðru fjöl­miðlafólki vegna nei­kvæðrar upp­lif­un­ar fólks og umræðu. Það er nú þannig. Hann setti blett á óheppi­leg­um tíma, þegar eng­inn Grind­vík­ing­ur var inni í bæn­um.“

Nægi­lega vel skrá­sett að mati lög­reglu­stjór­ans 

Úlfar Lúðvíks­son á mbl.is í sömu grein fe­brú­ar 2024 um aðgengi fjöl­miðlamanna og sína skoðun á því að sag­an væri nægi­lega vel skrá­sett í Grinda­vík. 

„Að mínu mati er sag­an ágæt­lega skráð. Vilji menn sýna verk­efn­um og aðstæðum sann­girni er það mín skoðun að blaðamenn og ljós­mynd­ar­ar hafi sinnt því verk­efni með ágæt­um að segja frá og mynda þá at­b­urði sem staðið hafa yfir hér á Reykja­nesi und­an­far­in ár, þrátt fyr­ir tak­mark­an­ir á aðgengi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert