Ósátt við höfnun ráðherra

Fjölskylduhjálpin hefur úthlutað yfir 300 fjölskyldum mat í viku hverri. …
Fjölskylduhjálpin hefur úthlutað yfir 300 fjölskyldum mat í viku hverri. Nú er starfsemin í uppnámi. mbl.is/Árni Sæberg

Útlit er fyr­ir að starf­semi Fjöl­skyldu­hjálp­ar Íslands verði hætt í haust ef ekk­ert verður að gert. „Við erum búin að segja upp leig­unni og ég á von á því að það verði lokað 1. sept­em­ber,“ seg­ir Ásgerður Jóna Flosa­dótt­ir, formaður Fjöl­skyldu­hjálp­ar Íslands.

Hún furðar sig á að Inga Sæ­land, fé­lags- og hús­næðismálaráðherra, hafi hafnað styrk­beiðni sam­tak­anna og seg­ir ráðherr­ann ekki starfa í takt við það sem hún hef­ur áður látið frá sér fara.

„Hún þekk­ir starfið og veit hvað það er mik­il­vægt. Ég talaði við hana í þrígang. Í fyrsta sím­tal­inu var allt mjög já­kvætt. Svo hitti ég hana á lands­fundi Flokks fólks­ins og spurði hana um málið. Þá sagðist hún hafa lagt þetta fyr­ir rík­is­stjórn og þar hefði því verið synjað því eng­ir pen­ing­ar væru til. Í þriðja sam­tal­inu sagðist hún ekk­ert geta gert,“ seg­ir Ásgerður Jóna
sem hef­ur tekið þátt í starfi Flokks fólks­ins og var um tíma vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins. Ásgerður Jóna hef­ur ekki gef­ist upp. Hún sendi er­indi til 600 fyr­ir­tækja og biðlaði til þeirra um að ger­ast bjarg­vætt­ir. 

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert