Atvinnuvegaráðuneytið hefur greitt 700 milljónir króna styrki til bænda til að mæta að hluta þeim áföllum sem urðu í landbúnaði vegna óvenjulegs og erfiðs tíðarfars á landinu sumarið 2024.
Um er að ræða sértæka einskiptisaðgerð sem samþykkt var af ríkisstjórninni 4. apríl 2025 að því er segir í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.
Heildarstyrkir nema rúmri 701 milljón króna og skiptast í tvo flokka:
Fram kemur að styrkveitingar byggi á skráningum bænda í skýrsluhaldi á uppskeru, afurðum og vanhöldum gripa árið 2024 samanborið við meðaltal áranna 2021-23. Þær mæti tjóninu að hluta en tekið er fram að það hafi verið áætlað tæpar 1.200 milljónir í heild hjá þeim 375 búum sem skráðu tjón fyrir 1. nóvember 2024.
„Til að gera viðbrögð skilvirkari og markvissari er einnig gert ráð fyrir að framtíðarfyrirkomulag sjóða sem bæta náttúruvá verði endurskoðað, þ.m.t. samlegðar og hagræðingartækifæri. Að auki verður áfram unnið að stefnumótun um náttúruvá, sbr. skýrslu umhverfis- og auðlindaráðuneytis frá apríl 2023,“ segir í tilkynningunni.