Vilhjálmur segir ákvörðunina varhugaverða

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að blanda pólitískum …
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að blanda pólitískum áherslum inn í framkvæmd réttarvörslukerfisins. mbl.is/Hallur Már

Vil­hjálm­ur Árna­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og íbúi í Grinda­vík, seg­ir það ekki traust­vekj­andi að blanda póli­tísk­um áhersl­um inn í fram­kvæmd rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins.

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra til­kynnti Úlfari Lúðvíks­syni, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á Suður­nesj­um, það í gær að hún hygðist aug­lýsa stöðu hans lausa til um­sókn­ar, en skip­un­ar­tími hans renn­ur út í nóv­em­ber. Úlfar óskaði í kjöl­farið eft­ir því að vera leyst­ur frá störf­um strax.

Bregður við svona orðalag

Dóms­málaráðherra og Mar­grét Krist­ín Páls­dótt­ir, sett­ur lög­reglu­stjóri á Suður­nesj­um, hafa sagt að um sé að ræða áherslu­breyt­ingu í takt við stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. 

„Að blanda póli­tísk­um áhersl­um inn í fram­kvæmd rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins á sama tíma og við töl­um um traust á kerf­inu finnst mér ekki traust­vekj­andi, ég verð að segja að mér bregður við svona orðalag,“ seg­ir Vil­hjálm­ur í sam­tali við mbl.is.

Úlfar hef­ur á tíma sín­um sem lög­reglu­stjóri meðal ann­ars verið áber­andi í umræðu um erfiða stöðu á landa­mær­un­um.

„Úlfar hef­ur bæði verið áber­andi varðandi stöðuna á landa­mær­un­um og varðandi aðgangs­stýr­ingu að Grinda­vík. Mér finnst þetta því var­huga­vert,“ seg­ir Vil­hjálm­ur. 

Lýs­andi fyr­ir rík­is­stjórn­ina

Dóms­málaráðherra hef­ur vísað til þess að embætti lög­reglu­stjóra á Suður­nesj­um komi til með að stækka og verk­efni þess breyt­ast, meðal ann­ars vegna þess að til stend­ur að koma á fót brott­far­ar- og komu­stöð fyr­ir hæl­is­leit­end­ur. 

„Þetta er enn eitt dæmi um það að rík­is­stjórn­in tek­ur ákvörðun út frá ein­hverju sem hún ætl­ar að gera en hef­ur ekki verið rætt á Alþingi. Þetta er svipað því þegar Inga Sæ­land neitaði að skipa stjórn Trygg­ing­ar­stofn­un­ar Ríks­ins vegna þess að hún ætlaði að leggja stjórn­ina niður. Við vit­um ekk­ert hvort að lokuðu bú­setu­úr­ræðin muni enda und­ir lög­reglu­stjóra eða ein­hverj­um öðrum, það hef­ur ekki verið rætt á Alþingi,“ Seg­ir Vil­hjálm­ur sem seg­ir þetta ekki dæmi um góða stjórn­ar­hætti. 

Veld­ur Grind­vík­ing­um ugg

Vil­hjálm­ur er eins og áður seg­ir Grind­vík­ing­ur og hef­ur því fylgst vel með störf­um Úlfars.

Grind­vík­ing­ar hafa að sögn Vil­hjálms ekki verið sátt­ir við all­ar ákv­arðanir Úlfars en hann seg­ir þó að þeir hafi borið traust til hans enda hafi hann lagt áherslu á að vera vel inni í mál­um og að halda góðum sam­skipt­um og því hafi ríkt gagn­kvæmt traust þar á milli. 

„Ég finn það bara strax að þetta veld­ur Grind­vík­ing­um mikl­um ugg og þetta eyk­ur á óviss­una sem hef­ur verið mik­il, Grind­vík­ing­ar eru hvekkt­ir yfir þessu,“ Seg­ir Vil­hjálm­ur að lok­um. 

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert