Skiptir sköpum í lausn rýmisvandans

Rafn Benediktsson, forstöðulæknir bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu, segir að fyrirhuguð …
Rafn Benediktsson, forstöðulæknir bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu, segir að fyrirhuguð viðbygging komi til með að skipta sköpum. Samsett mynd/Kristinn Magnússon/Landsspítali

Fyr­ir­huguð viðbygg­ing við Land­spít­al­ann í Foss­vogi kem­ur til með að skipta sköp­um í að leysa rým­is­vanda bráðamót­tök­unn­ar.

Rafn Bene­dikts­son, for­stöðulækn­ir bráða-, lyflækn­inga og end­ur­hæf­ing­arþjón­ustu Land­spít­al­ans, seg­ir að lík­lega muni starf­semi bráðamót­tök­unn­ar ekki fær­ast út í um­rætt rými en það komi eft­ir sem áður til með að skipta sköp­um fyr­ir starf­sem­ina og vera eins kon­ar mats­deild. 

Síðasta föstu­dag til­kynnti heil­brigðismálaráðuneytið að bráðamót­taka Land­spít­al­ans í Foss­vogi verði stækkuð með 700 fer­metra viðbót­ar­hús­næði sem á að vera til­búið í fyr­ir lok þessa árs.  

Fólk fast á bráðamót­tök­unni

„Þetta mun breyta mjög miklu, sama á hvaða formi þetta verður. Það er að segja, bráðamót­tak­an sjálf mun ekki endi­lega fær­ast út í þetta rými held­ur er þetta í raun hugsað sem fyr­ir­bæri til að létta á starf­semi bráðamót­tök­unn­ar og gera henni kleift að sinna sínu hlut­verki bet­ur og af virðingu, elju og dugnaði,” seg­ir Rafn og bæt­ir við:    

„Við get­um það ekki núna því það er fólk fast inni á bráðamót­tök­unni sem ætti að vera ann­ars staðar á spít­al­an­um.“

Hann út­skýr­ir að að öll­um lík­ind­um verði starf­sem­in í viðbygg­ing­unni, sem rúma mun 20 sjúkra­rúm, verða á formi eins kon­ar mats­deild­ar.    

„Það er langlík­leg­ast að þetta verði ein­hvers kon­ar mats­deild, svo við get­um í raun­inni auðveldað bráðalækn­un­um að sinna sín­um mál­um og svo þegar ljóst er að það þurfi að at­huga málið frek­ar sé þetta staður­inn þar sem við get­um gert það.”

Birt­inga­mynd vanda kerf­is­ins í heild    

Þegar er búið að samþykkja útboð í bygg­ingu hús­næðis­ins og standa von­ir til að hægt verði að opna það fljót­lega eft­ir ára­mót.

„Sum­arið fer í að panta inn í þetta og að skipu­leggja hvernig ferl­arn­ir verða, hverj­ir manna þetta og svo fram­veg­is,” seg­ir Rafn.

Mik­ill rým­is­vandi hef­ur ríkt á bráðamót­tök­unni síðustu ár og hef­ur verið rætt um hann í fjöl­miðlum.    

Spurður hvort þessi viðbygg­ing komi til með að leysa þann vanda al­gjör­lega seg­ir Rafn: 

„Það þarf auðvitað meira til og skýr­ing­in á vand­an­um sem birt­ist á bráðamót­tök­unni er í raun vandi heil­brigðis­kerf­is­ins í heild. Vand­inn verður í raun því það eru ekki nógu mörg úrræði utan spít­al­ans til þess að koma fólki fyr­ir og þjóna því þar.”

30 í biðstöðu hverju sinni

„Á er­lendu máli hef­ur þetta verið kallað exit block, við get­um kannski kallað það inn­lagn­ar­vanda bráðamót­tök­unn­ar, og þetta er vel þekkt alls staðar í kring­um okk­ur. Við höf­um sem sagt ekki pláss á legu­deild­un­um til þess að leggja inn fólk því að þar sit­ur inni fyr­ir mjög mikið af fólki sem við erum í raun búin að þjón­usta eins og við get­um á spít­al­an­um.

Aðstæðurn­ar úti í þjóðfé­lag­inu, inni á heim­il­um þeirra eða hjúkr­un­ar­heim­ili, til að taka á móti þeim eru hins veg­ar ekki til,” seg­ir Rafn til frek­ari skýr­ing­ar og bæt­ir við að á hverj­um tíma­punkti séu um 30 manns í slíkri biðstöðu á bráðamót­tök­unni og 90 manns á Land­spít­al­an­um öll­um.

Um nýju viðbygg­ing­una seg­ir Rafn: „Þetta eru 20 rúm þannig það mun hjálpa al­veg hell­ing en það er ekki nóg. Þetta er samt kannski ágæt­is skref þangað til að við flytj­um inn í nýja spít­al­ann.”    

Ekk­ert rask

Að lok­um seg­ir Rafn aðspurður að fram­kvæmd­ir við viðbygg­ing­una komi ekki til með að valda raski á starf­semi bráðamót­tök­unn­ar.    

„Í raun og veru verður þetta mjög lítið og þannig séð ekki neitt rask. Svæðið þar sem er fyr­ir­hugað að koma þessu fyr­ir er í raun og veru bara svæði sem teng­ist við gang sem er ná­lægt eða við hlið bráðamót­tök­unn­ar.    

Þetta mun ekki trufla bráðamót­tök­una, ekki aðgengi að henni eða neitt svo­leiðis,” seg­ir Rafn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert