Pílu- og veitingastaðurinn Skor í miðbæ Reykjavíkur fær ekki heimild til þess að lengja opnunartíma sinn.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði því að fella úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að synja staðnum um lengri opnunartíma.
Staðurinn hefur nú heimild til þess að hafa opið til 22:00 sunnudaga til fimmtudaga og til 23:00 á föstudögum og laugardögum. Í umsókn staðarins var farið fram á leyfi til þess að hafa opið til 23:00 á virkum dögum og til 01:00 um helgar. Eins og áður segir var því hafnað og hefur úrskurðarnefndin staðfest þá ákvörðun.
Frá því að staðurinn opnaði árið 2021 hafa yfirvöldum ítrekað borist kvartanir frá íbúum í húsnæðinu þar sem staðurinn er rekinn.
Ástæða þess er að hávaði frá staðnum er mikill og hafa mælingar heilbrigðiseftirlitsins sýnt fram á að hann sé yfir velsæmismörkum.
Rekstararaðilar Skor hafa þó borið það fyrir sig að hljóðmælingar heilbrigðiseftirlitsins hafi ekki verið í samræmi við alþjóðlega viðurkennda staðla. Úrskurðarnefndin taldi sig þó ekki bæra til þess að ógilda slíkar mælingar.
Bragi Ægisson, framkvæmdastjóri 0101 ehf. sem er rekstaraðili Skor, segir í samtali við mbl.is að niðurstaðan komi sér ekki á óvart.
Hann segir að þrátt fyrir að staðurinn sé oftast fullur af viðskiptavinum þá sé það afar íþyngjandi að geta ekki haft opið lengur. Hann segist ekki geta útilokað það að hann neyðist til þess að loka staðnum eða færa hann yfir á nýjan stað.
„Við getum þó líka einfaldlega bara sótt um leyfi að nýju, úrskurðurinn bar þess merki að þar voru ákveðnar ávítur á heilbrigðiseftirlitið og framkvæmd þeirra þrátt fyrir að ekki væri tilefni til þess að ógilda ákvörðunina,“ segir Bragi að lokum en hann telur að baráttunni sé ekki lokið.
Hægt er að nálgast úrskurðinn hér.