Umferð á höfuðborgarsvæðinu dróst saman í apríl

Umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Umferð á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um­ferð á höfuðborg­ar­svæðinu dróst sam­an um 2,7% miðað við apr­íl­mánuð á síðasta ári. Þetta kem­ur fram í töl­um Vega­gerðar­inn­ar.

Ástæðan fyr­ir þess­um sam­drætti er að lík­ind­um vegna pásk­anna þar sem um­ferð á höfuðborg­ar­svæðinu minnk­ar tals­vert á þeim tíma. Fleiri kjósa að ferðast á þess­um tíma vegna frí­daga sem veld­ur því að um­ferð eykst út á landi. 

Sam­kvæmt Vega­gerðinni er mest ekið á miðviku­dög­um en minnst á sunnu­dög­um.

Þrátt fyr­ir sam­drátt hef­ur um­ferð auk­ist um 2% frá ára­mót­um miðað við sama tíma á síðasta ári. Þetta er þó mun minni aukn­ing en síðastliðin ár.

Vega­gerðin spá­ir því að um­ferð þetta árið geti auk­ist um rúm 4% borið sam­an við árið 2024. Bú­ist er við tals­verðri aukn­ingu á Hafna­fjarðar­vegi á höfuðborg­ar­svæðinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert