Aukin framlög til varnarmála, áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins var meðal þess sem rætt var um á óformlegum fundi utanríkisráðherra NATO-ríkja sem lauk fyrr í dag í Tyrklandi. Þá voru málefni Mið-Austurlanda og staðan á Gaza sömuleiðis til umræðu.
Fundur ráðherranna var haldinn á sama tíma og fyrstu friðarumleitanir milli sendinefnda Rússlands og Úkraínu fóru fram, og settu þær því óneitanlega mark sitt á fundinn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn fyrir Íslandshönd en í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu er haft eftir henni að góð samstaða og samheldni hafi einkennt fundinn. Þá segir Þorgerður einnig að til standi nú að auka verulega framlög til varnarmála og stuðning við Úkraínu, auk þess sem nú sé í mótun ný öryggis- og varnarstefna fyrir Ísland innan utanríkisráðuneytisins.
Eru yfirlýsingar Þorgerðar því í takt við það sem vænta má að rætt verði á næsta leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem fer fram í Haag í Hollandi dagana 24.-25. júní nk. en þar er viðbúið að samþykkt verði ný viðmið um stóraukin framlög bandalagsþjóða til varnarmála.