Bjarni Þór nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags

Bjarni Þór Logason, nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags.
Bjarni Þór Logason, nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags. Ljósmynd/RVK Bruggfélag

Bjarni Þór Loga­son hef­ur verið ráðinn sem nýr fram­kvæmda­stjóri RVK Brugg­fé­lags. Ráðning­in mark­ar tíma­mót í starf­semi fé­lags­ins, sem stefn­ir nú á mikla sókn.

Þetta seg­ir í til­kynn­ingu frá RVK Brugg­fé­lagi.

Kem­ur Bjarni frá Heim­kaup­um, þar sem hann var inn­kaupa­stjóri og kom m.a. að opn­un versl­un­ar­inn­ar Prís. Hann hef­ur áður starfað sem rekstr­ar­stjóri hjá Ölgerðinni, RJC og Lífl­andi og hef­ur yfir 20 ára reynslu af mat­væla­markaði.

Þá hef­ur hann lokið BS-prófi í viðskipta­fræði með áherslu á stjórn­un og rekst­ur auk þess að hafa lagt stund á nám í tölv­un­ar­fræði frá Há­skól­an­um í Reykja­vík.

RVK Brugg­fé­lag var stofnað á bjórdag­inn 2017 og hef­ur síðan þá gert yfir 200 teg­und­ir bjóra.

Fé­lagið starf­ræk­ir í dag tvö brugg­hús í Skip­holti og opnaði árið 2024 brugg­stofu í Tóna­bíó þar sem rek­inn er staður með 22 bjór­krön­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert