Borgin stendur við viðburðargjald

Útlit er fyrir að miðbæjarreiðin fari ekki fram í ár.
Útlit er fyrir að miðbæjarreiðin fari ekki fram í ár. mbl.is/Arnþór

Ekki stend­ur til af hálfu Reykja­vík­ur­borg­ar að end­ur­skoða ákvörðun um að setja viðburðar­gjald á miðbæj­ar­reið Lands­sam­bands hesta­manna í ár.

Þetta kem­ur fram í skrif­legu svari frá Reykja­vík­ur­borg við fyr­ir­spurn mbl.is.

Reykja­vík­ur­borg hyggst inn­heimta viðburðar­gjald vegna miðbæj­ar­reiðar­inn­ar að fjár­hæð 477.500 krón­ur en í svar­inu seg­ir að af­nota­leyf­is­gjöld þurfi að greiða vegna flestra viðburða. Það fari eft­ir um­fangi þeirra.

Götu­lok­un og dælu­bíll

Sund­urliðaður kostnaður á bak við viðburðagjaldið vegna miðbæj­ar­reiðar­inn­ar er sem hér seg­ir:

Kostnaður við götu­lok­un (9 menn og búnaður, bíl­ar fyr­ir ör­ygg­is­lok­un og grind­ur) - 349.000 kr.

Þrif (Dælu­bíll, sóp­ur dug­ar ekki) - 75.000 kr.

Af­nota­leyfi í um­fangs­flokki 1 – 53.500 kr.

Gjald­skrá af­nota­leyfa

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert