Fullyrðing heilbrigðisráðherra standist ekki skoðun

Ekki er enn komið á hreint hvað tek­ur við fyr­ir þá sem notið hafa þjón­ustu Janus­ar end­ur­hæf­ing­ar þegar úrræðið lok­ar um mánaðamót­in, þrátt fyr­ir full­yrðing­ar heil­brigðisráðherra þar um.

Þetta er meðal þess sem Eden Frost Kjart­ans­b­ur og Sigrún Ósk Berg­mann, þjón­ustu­not­end­ur Janus­ar, segja í sam­tali við mbl.is.

Aðspurð segj­ast þau ekk­ert hafa heyrt eft­ir upp­lýs­inga­fund í lok apríl þar sem þau fengu kynn­ingu á úrræðum á veg­um VIRK en var um leið gert ljóst að eng­ar ákv­arðanir yrðu tekn­ar á þeim fundi.

Í svari Ölmu Möller heil­brigðisráðherra við fyr­ir­spurn Ingi­bjarg­ar Isak­sen, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, um end­ur­hæf­ingu ungs fólks full­yrðir Alma aft­ur á móti að nú hafi „öll­um sem nutu þjón­ustu hjá Jan­usi verið boðin önn­ur viðeig­andi þjón­usta sem tek­ur mið af þjón­ustuþörf­um hvers og ým­ist hjá samn­ingsaðilum VIRK eða á göngu­deild lynd­isrask­ana á Land­spít­ala. Því verður ekki rof á þjón­ustu við þá ein­stak­linga sem nú njóta end­ur­hæf­ing­ar hjá Jan­usi.“

Hafa ekk­ert heyrt eft­ir kynn­ing­ar­fund

Spurt álits á full­yrðing­unni að öll­um hafi verið boðin viðeig­andi úrræði, seg­ir Eden lík­legt að vísað sé í of­an­greind­an fund og talið „að það sé bara nóg“. Þá seg­ist hán ekk­ert hafa heyrt eft­ir fund­inn.

Sigrún tek­ur í sama streng en bæt­ir við að hún hafi kom­ist að því ný­lega að VIRK hafi sent svo­kallað þjón­ustu­boð fyr­ir henn­ar hönd í annað úrræði, án henn­ar vit­und­ar.

„Starfs­fólk Hringsjár sagði okk­ur að þau væru kom­in með þjón­ustu­boð fyr­ir okk­ur þegar við fór­um á kynn­ingu hjá þeim. Þau sögðust ekki hafa vitað að þetta hefði verið sent án okk­ar vit­und­ar og þau vilji bara taka á móti okk­ur ef það er það sem við vilj­um,“ seg­ir Sigrún og bæt­ir við að VIRK hafi aðeins upp­lýst hana um þetta eina úrræði. Starfs­fólk Janus­ar hafi aft­ur á móti viljað að þjón­ustu­not­end­ur hefðu fleiri val­kosti eft­ir lok­un­ina og bent þeim á fleiri úrræði.

Spurð hvað taki við ef Hringsjá hent­ar ekki fyr­ir ein­hverja ein­stak­linga í hópn­um seg­ir Sigrún þá ein­stak­linga verða að finna úrræði á eig­in veg­um þar sem þeir endi lík­lega á löng­um biðlista.

„Það er bara verið að ýta okk­ur að þessu eina úrræði í von um að við velj­um það,“ seg­ir hún og bæt­ir við að hóp­ur­inn hafi á til­finn­ing­unni að það sé auðveld­asta leiðin fyr­ir VIRK og heil­brigðisráðuneytið til að loka mál­inu.

Fara í bráðabirgðahús­næði hjá Hringsjá

„Ég ræddi við starfs­fólk Hringsjár um það að verða fært þangað og þau segja það sjálf að þetta er ekk­ert eins og Jan­us, þetta er ekki að taka við af Jan­usi,“ seg­ir Eden.

Í hverju ligg­ur mun­ur­inn á Jan­usi og Hringsjá, að þínu mati?

„Hringsjá er end­ur­hæf­ing fyr­ir lengra komna. Þar er ekki geðlækn­ir, ekki nógu mik­il sál­fræðiaðstoð í boði, alla­vega fyr­ir þenn­an hóp, og þau eru ekki með hús­næði fyrr en í ág­úst. Þetta úrræði er ekki til­búið fyr­ir þenn­an hóp.

Það eru 49 þjón­ustu­not­end­ur frá Jan­usi á leiðinni í úrræði sem þeir ákváðu eða samþykktu ekki sjálf­ir. Við för­um í eitt­hvað bráðabirgðahús­næði sem þau eru með fram í lok júní, svo er lokað í júlí,“ svar­ar Eden.

Spurt hvort Jan­us loki ekki á sumr­in svar­ar hán neit­andi.

„Þetta var al­veg út um allt“

Fagaðilar, þjón­ustu­not­end­ur Janus­ar og aðstand­end­ur hafa lýst því yfir að Jan­us sé ein­stakt úrræði sem hafi verið sér­stak­lega hannað til að tak­ast á við fjölþætt­an vanda ungs fólks með taugaþrosk­arask­an­ir. Þannig hafa þau einnig lýst mikl­um áhyggj­um af því að önn­ur úrræði, á við VIRK, séu ekki rétt fyr­ir þenn­an ákveðna hóp.

Sigrún hef­ur sjálf reynslu af end­ur­hæf­ingu á veg­um VIRK en að eig­in sögn ent­ist hún ekki leng­ur en tæp­lega þrjá mánuði í úrræðinu. Eft­ir að hún hætti fór hún í viðtal hjá Geðheilsu­teymi Land­spít­al­ans sem benti henni á að henni myndi senni­lega líða bet­ur hjá Jan­us en þar.

„Mér leið ekki vel hjá VIRK og fannst aðstæður í raun­inni bara láta mér líða verr, sér­stak­lega eft­ir að ég fékk ekki meiri tíma hjá sál­fræðingn­um,“ seg­ir Sigrún en á veg­um VIRK fékk hún átta tíma hjá sál­fræðingi.

„Ég fann að ég var far­in að reyna að setja á mig grímu til að fara í gegn­um þetta en það var bara ekki að virka,“ seg­ir hún og bæt­ir við að óper­sónu­legt vinnu­lag hafi ýtt und­ir upp­lif­un henn­ar á að litið væri á hana sem tölu á blaði frek­ar en mann­eskju með fjölþætt­an vanda.

Á hvaða hátt upp­lifðirðu það?

„Það var bæði um­hverfið og að mér fannst eins og það væri verið að ákveða fyr­ir mig hvað ég þurfti og að ég þyrfti að passa inn í fyr­ir­fram ákveðinn kassa hjá þeim.“

Á veg­um úrræðis­ins var henni út­hlutað ráðgjafa í Kringl­unni, at­vinnu­tengli í Borg­ar­túni, tengiliði í miðbæ Reykja­vík­ur og iðjuþjálf­ara í Hafnar­f­irði.

„Þetta var al­veg út um allt sem var mjög erfitt fyr­ir mig. Það sem hef­ur komið sér svo vel hjá Jan­usi er meðal ann­ars að allt sé und­ir einu þaki,“ seg­ir hún og tek­ur þar með und­ir orð fagaðila, annarra þjón­ustu­not­enda og aðstand­enda um mik­il­vægi þess fyr­ir þann viðkvæma hóp sem þjón­ustu­not­end­ur Janus­ar til­heyra, að allt sé und­ir einu þaki.

Var hafnað af VIRK

Sjálft hef­ur Eden ekki reynslu af VIRK en háni var að eig­in sögn hafnað af úrræðinu.

„Ég mætti ekki í fyrstu viðtöl­in vegna kvíða og þá var mér vísað burt,“ seg­ir Eden. Hán hafi fengið á til­finn­ing­una að hán væri með of mik­inn kvíða til að VIRK gæti tekið við sér. 

„Það eru svona skila­boðin sem ég fékk. Það var geðheils­an sem kom í veg fyr­ir það að ég færi í VIRK.“

Var þér bent eitt­hvert annað af starfs­fólki VIRK?

„Nei. Mér var vísað burt og ég fór aft­ur til heim­il­is­lækn­is og fór þannig til Janus­ar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert