Landsbankinn hefur auglýst gömlu höfuðstöðvar bankans í Austurstræti og Hafnarstræti til sölu. Er heildarstærð húsanna tæplega 6.000 fermetrar með kjallara og verða húsin seld í einu lagi.
Um er að ræða húsin Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14. Er heildarstærð þeirra 5.836 fermetrar, en þar af eru 1.380 fermetrar í kjallara.
Austurstræti 11 var upphaflega reist árið 1898, en endurbyggt og stækkað árið 1924 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar, en hann teiknaði jafnframt allar innréttingar. Viðbygging við húsið var svo tekin í notkun árið 1940. Húsið var friðað árið 1991 og nær sú friðun til ytra byrði hússins, vegglistaverka og innréttinga sem voru gerðar árið 1924.
Í húsinu er meðal annars að finna freskur eftir Jóhannes S. Kjarval og Jón Stefánsson. Er sú eftir Jón í stóra salnum á jarðhæðinni og gerir þar landbúnaði þess tíma góð skil. Þegar farið er upp á efri hæð er svo að finna freskuna eftir Jóhannes Kjarval, en hún vísar til sjávarútvegsins.
Hafnarstræti 10-12 var áður kallað Edinborgarhúsið og var byggt árið 1923 eftir uppdráttum Einars Erlendssonar. Var það upphaflega þrjár hæðir, en fjórðu hæðinni var síðar bætt ofan á. Hafnarstræti 14 var hins vegar reist árið 1970 og tengist jarðhæðin þar við afgreiðslusalinn í Austurstræti 11, þar sem fyrrnefnd freska Jóns er.
Í tilkynningu bankans segir að íslenska ríkið hafi upphaflega lýst áhuga sínum yfir að kaupa Austurstræti 11, en nú sé ljóst að ekki verði af kaupunum. Því sé eignin í heild auglýst til sölu.
Bankinn flutti starfsemi sína árið 2023 úr alls 12 húsum við Austurstræti, Hafnarstræti og Tryggvagötu yfir í nýtt hús bankans við Reykjastræti 6.
Óskar bankinn eftir tilboðum, en ekki er gefið upp ásett verð.