Óttast stöðnun en ástæða til bjartsýni

Sigurður Hannesson hjá Samtökum iðnaðarins í viðtali.
Sigurður Hannesson hjá Samtökum iðnaðarins í viðtali. mbl.is/Hallur Már

Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka iðnaðar­ins, seg­ir að blik­ur á lofti í efna­hag lands­ins og raun­ar heims­ins alls séu áhyggju­efni, sem bæði stjórn­völd og at­vinnu­líf verði að gefa góðan gaum. Góðu frétt­irn­ar séu þær að Íslend­ing­ar hafi lausn­irn­ar að mestu í eig­in hendi.

Þetta er meðal þess, sem fram kem­ur í viðtali Dag­mála, sem birt er í dag á mbl.is og er opið öll­um áskrif­end­um, en út­drátt úr því má lesa í blaðinu í dag.

Sig­urður hrós­ar stjórn­völd­um fyr­ir að hafa haldið skyn­sam­lega á hags­mun­um Íslands í alþjóðlegu um­róti, en eins séu áform rík­is­stjórn­ar­inn­ar í orku­mál­um mjög til bóta. Meira þurfi þó til þess að rjúfa þá stöðnun, sem gæti í efna­hags­líf­inu, en þar sé fjár­magns­kostnaður og óviss­an erfiðust viðfangs, en mik­il­væg­ast sé að auka sam­keppn­is­hæfni lands­ins hratt og ör­ugg­lega. 

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert