Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir að Fjölskylduhjálp Íslands hafi ekki sótt um svokallaðan velferðarstyrk hjá ráðuneytinu. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær er Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður Fjölskylduhjálparinnar afar ósátt við Ingu og segir hana hafa neitað samtökunum um styrk. Því stefni í að starfseminni verði brátt hætt.
„Ástæða þess að ekki var veittur styrkur til Fjölskylduhjálpar Íslands þegar velferðarstyrkir voru veittir í mars sl. er sú að Fjölskylduhjálp Íslands sótti ekki um slíkan styrk. Auglýst var eftir umsóknum um styrkina haustið 2024 og fylla þurfti út umsókn í gegnum rafrænt form á vef Stjórnarráðsins,“ segir í yfirlýsingu frá Ingu.
„Í mínum huga er óumdeilt að Fjölskylduhjálp Íslands hefur veitt ófáum fjölskyldum ómetanlegan stuðning í formi matargjafa, enda hef ég verið að leita leiða í ráðuneytinu, burtséð frá þessari formlegu umsókn sem ekki barst, til þess að styðja frekar þau góðu verk sem Fjölskylduhjálp Íslands vinnur í þágu þeirra sem mest þurfa á hjálp að halda,“ segir Inga.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.