„Ég var upplýst um þetta á síðasta fundi skóla- og frístundaráðs. Pólitíkin tekur ekki ákvörðun um þetta, heldur mannauðssvið og sviðsstjóri, en við erum eftirlitsaðilar. En þetta er vissulega há upphæð,“ segir Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, í samtali við Morgunblaðið.
Leitað var viðbragða hennar við þeim tíðindum að borgin hefði á tæpum níu árum greitt um 320 milljónir til skólastjórnenda sem létu af störfum á tímabilinu á grundvelli starfslokasamninga.
Helga segist fyrst hafa komið að málum sviðsins í febrúar sl. og fréttirnar séu þar af leiðandi nýjar fyrir henni. „Ég veit ekki forsögu þessara mála,“ segir hún.
Hún segir að starfslok séu alltaf neyðarúrræði og hún eigi erfitt með að meta hvaða hagsmunir hafi legið undir í viðkomandi málum.
Helga bendir á að skóla- og frístundasvið sé dýrasta svið borgarinnar, velta sviðsins sé yfir 80 milljarðar á ári, á sviðinu starfi um 6.000 manns og starfseiningar séu 110 talsins.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.