Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra bauð Úlfari Lúðvíkssyni, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, að taka við embætti lögreglustjórans á Austurlandi án þess að þurfa að sækja um það formlega, gegn því að hann hætti í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Það taldi Úlfar ekki koma til greina af sinni hálfu og lét hann strax af embætti lögreglustjóra.
Þetta kemur m.a. fram í fundargerð af fundi ráðherrans með Úlfari, en auk þeirra sat fundinn Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu. Fundurinn var haldinn í ráðuneytinu sl. mánudag. Haukur ritaði fundargerðina sem mbl.is hefur undir höndum og er svohljóðandi:
„Fundur í dómsmálaráðuneytinu, mánudaginn 12. maí 2025 kl. 11.00. Mættir eru ráðherra, ráðuneytisstjóri og Úlfar Lúðvíksson (ÚL), lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Ráðherra fer yfir að umfangsmiklar breytingar verði gerðar á embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum á næstunni. Hún gerir ráð fyrir að leggja fram frumvarp næsta haust, þar sem embættinu verði m.a. falið að reka lokaða brottfararstöð fyrir þá sem fengið hafa niðurstöðu um brottvísun frá landinu og væntanlega einnig móttökustöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd á meðan umsóknir þeirra eru forskoðaðar og metnar, áður en viðkomandi er hleypt inn í landið. Þá sé í skoðun að heimferða- og fylgdardeild RLS verði færð til embættisins og jafnvel enn frekari breytingar. Það sé því rétt að embættið verði auglýst þegar 5 ára skipunartími lögreglustjóra renni út í nóvember.
Í þessu ljósi sé ÚL hér með tilkynnt um þá ákvörðun að embættið verði auglýst við lok skipunartímans í nóvember. Ráðherra áréttar að þessi ákvörðun byggist að engu leyti á frammistöðu lögreglustjórans í starfi.
Ráðherra fer yfir að það vilji svo til að embætti lögreglustjórans á Austurlandi sé laust. Ef ÚL geti hugsað sér að flytjast í það embætti, án þess að þurfa að sækja um embætti, standi það til boða, enda standi vilji hennar alls ekki til þess að hann hverfi úr hópi lögreglustjóra.
ÚL kveðst telja að úr því þessi ákvörðun liggi fyrir, fari best á því að hann ljúki störfum sem allra fyrst og ekki seinna en í vikulok. Ekki komi til greina af sinni hálfu að taka við embættinu á Austurlandi. Hann bendir á að hann eigi í sjálfu sér rétt á launum út skipunartímann og auk þess í hálft ár í viðbót ef ákveðið væri að skipa hann ekki að nýju eftir auglýsingu. Hann telji hins vegar betur fara á því að gera einfaldlega samkomulag um starfslok nú þegar, án þess að hann missi af neinu í þessum kjörum og án þess að hann skili inn umsókn um embættið. Af hálfu ráðuneytisstjóra kemur fram að hann sjái í fljótu bragði ekki að það ætti að vera ómögulegt að fallast á þessa beiðni ÚL. Hann muni skoða það og láta ÚL vita af því strax á morgun hvort nokkuð standi þessu í vegi.“
Starfslokasamningur á framangreindum grunni var síðan gerður við Úlfar daginn eftir, þ.e. á þriðjudag.