Þrátt fyrir að langt sé í að frumvarp um hækkun veiðigjalda verði að lögum er áhrifa þess þegar farið að gæta hjá iðnfyrirtækjum, segir Sigurður Hannesson hjá Samtökum iðnaðarins. Fyrirtæki í sjávarútvegi haldi að sér höndum, þau fresti fjárfrekum áformum og vilji bíða og sjá.
Þetta kemur fram í viðtali Dagmála við Sigurð, sem birt er í dag. Viðtalið er opið öllum áskrifendum.
„Áhrif [frumvarpsins] á iðnaðinn eru farin að koma fram, m.a. í því að pantanir á búnaði og öðru hafa verið settar á ís. Þeim hefur verið frestað vegna óvissu,“ segir Sigurður.
„Iðnfyrirtæki víða um land, sem reiða sína afkomu mjög á viðskipti við sjávarútveginn, þau eru uggandi,“ bætir hann við.
„Þau hafa náttúrlega fundið fyrir samdrætti á undanförnum árum, til dæmis þegar það hefur orðið loðnubrestur, þannig að þau staldra við í þessum óvissuaðstæðum og óttast um sinn hag á næstunni.“
Sigurður segir að stjórnvöld hafi vissulega gert ýmislegt til þess að draga úr óvissu. Hann nefnir til dæmis að Samtök iðnaðarins séu ánægð með hagsmunagæslu stjórnvalda í tollamálum gagnvart Evrópusambandinu.
Hins vegar þurfi betur að gæta að samkeppnishæfni atvinnulífs á þessum óvissutímum og veiðigjöldin séu dæmi um hvernig úr henni geti dregið víðar en í viðkomandi grein fyrir vikið. Svipað kunni að gerast með aukinni skatttheimtu af ferðaþjónustu.
„Það blasir við að það fara allir að máta sig við þetta,“ segir Sigurður um viðbrögð annara greina við aukinni skattheimtu af atvinnulífi og hvort þær séu þá næstar í röðinni.
„Við þurfum að sjá meira samtal við stjórnvöld um það hvað framtíðin kann að bera í skauti sér. Það er sterkt ákall um fyrirsjáanleika. Það er ekki hægt að fara í mjög viðamiklar breytingar með skömmum fyrirvara,“ segir hann og telur að þar hafi möguleg áhrif þeirra ekki verið metin sem skyldi.
„Í umsögn okkar um veiðigjöldin kölluðum við til dæmis sérstaklega eftir því að það yrði greint hvaða áhrif þetta hefði á iðnaðinn. Við söknum þess að sjá ekki meiri umræðu um það.“
Viðtalið við Sigurð má horfa á í heild sinni hér: