Ein á vaktinni og kemst ekki yfir allt

Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, hefur gagnrýnt félagsmálaráðherra.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar, hefur gagnrýnt félagsmálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

„Þegar ég sá fram á að Flokk­ur fólks­ins færi í rík­is­stjórn þá setti ég mig í sam­band við Ingu, við rædd­um sam­an í þrígang og í fram­haldi af því sendi ég henni um­sókn,“ seg­ir Ásgerður Jóna Flosa­dótt­ir formaður Fjöl­skyldu­hjálp­ar­inn­ar.

Hún hef­ur gagn­rýnt fé­lags­málaráðherra fyr­ir að veita Fjöl­skyldu­hjálp­inni ekki styrk og sér fram á að þurfa að loka. Inga Sæ­land upp­lýsti við Morg­un­blaðið í gær að Fjöl­skyldu­hjálp­in hefði aldrei sótt um.

Spurð hvers vegna hún hafi ekki sótt um styrk­inn á meðan um­sókn­ar­frest­ur var enn í gildi seg­ist Ásgerður ein­fald­lega ekki kom­ast yfir allt sem þurfi að gera á skrif­stofu Fjöl­skyldu­hjálp­ar­inn­ar. Hún hafi mikið á sinni könnu við það að halda starf­sem­inni gang­andi, og það hafi ekki skilað mikl­um ár­angri að leita eft­ir styrkj­um frá hinu op­in­bera.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert