„Gríðarlega gaman að fá tugþúsundir nýrra hluthafa“

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. mbl.is/Eyþór

„Fyrstu viðbrögð eru bara þakk­læti og það er bara ótrú­lega skemmti­legt hvað það var mik­ill áhugi. Maður fann auk­in áhuga eft­ir því sem að leið á vik­una,“ seg­ir Jón Guðni Ómars­son, banka­stjóri Íslands­banka.

Útboði á hlut­um í Íslands­banka lauk í gær og hef­ur verið greint frá að yfir 30.000 ein­stak­ling­ar hafi keypt í bank­an­um.

Hefði verið gam­an að fá er­lenda fjár­festa inn

Sam­kvæmt til­kynn­ingu fjár­málaráðuneyt­is­ins í morg­un skráði al­menn­ing­ur sig fyr­ir sam­tals 88,2 millj­örðum af 90,6 millj­örðum sem ríkið ákvað að selja. Það er því ljóst að aðeins lít­ill hluti mun fara til stærri fjár­festa eða fag­fjár­festa til að byrja með. 

Spurður hvort slík niðurstaða sé von­brigði seg­ir Jón Guðni svo ekki.

„Nei, nei. En að vissu leyti erum við nátt­úru­lega búin að eyða gríðarleg­um tíma í að hitta fjár­festa bæði inn­an­lands og er­lend­is og það hefði nú al­veg verið gam­an ef ein­hverj­ir af þeim hefðu getað fengið út­hlut­un. Við erum búin að hitta mikið af er­lend­um aðilum sem hefðu þá verið að koma nýir inn á markaðinn.“

„Út frá bank­an­um er þetta bara gríðarlega ánægju­legt og gam­an að sjá svona mikið traust til okk­ar. Það er gríðarlega gam­an að fá tugþúsund­ir nýrra hlut­hafa.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert