„Við erum bara eins og íþróttafélag. Íþróttafélag sem fer í skrúðgöngu niðri í bæ þarf væntanlega ekki að borga viðburðagjald, þetta er bara eins.“
Þetta segir Linda Björk Gunnlaugsdóttir, formaður Landssamband hestamanna, en Reykjavíkurborg hyggst standa við fyrirætlanir sínar að innheimta viðburðargjalda af sambandinu vegna hinnar þekktu miðbæjarreiðar í ár.
Gjaldið er tekið vegna afnotaleyfis, götulokana og hreinsunarstarfs og nemur alls 477.500 krónum.
„Við lifum á fjármagni frá aðildarfélögum hringinn í kringum landið og okkur ber skylda til að fara vel með þá peninga. Það er nánast allt í hestamennsku unnið í sjálfboðavinnu og við höfum ekki peninga til að borga einhverjum fyrir að hreinsa götur borgarinnar.
Við erum alveg tilbúin að greiða fyrir afnotaleyfið en erum ekki í stakk búin til að borga hálfa milljón tæpa,“ segir Linda Björk.
Hún segir Landssamband hestamanna hafa fullan skilning á því að það eigi að vera ráðdeild í borginni en spyr sig hvernig málum er háttað í sambandi við mótmæli á Austurvelli.
„Þurfa þeir sem standa að mótmælum að borga viðburðagjald eða hreinsunargjald? Eða ef kröfugöngur eru í bænum. Hver fær reikninginn fyrir því?“
Miðbæjarreiðin er áratuga gömul hefð sem Linda segir sorglegt að slá þurfi af.
Segir hún að alltaf hafi verið tekið vel í miðbæjarreiðina þar til fyrir nokkrum árum þegar fór að vera erfiðara og erfiðara að fá leyfi fyrir viðburðinum.
„Í fyrra var leyfinu synjað en þá var settur pólitískur þrýstingur á borgina sem endaði með því að borgarstjóri ákvað að veita leyfið.
Þá borguðum við fyrir afnotaleyfið, rúmar 50 þúsund krónur, en borgin tók á sig kostnað við götulokanir og hreinsunarstarfs.“
Linda segir þetta snúast um hrossaskítinn sem þarf að þrífa eftir reiðina. Það hafi alltaf verið vitað að skítur komi undan lifandi dýrum. Það komi líka skítur frá hundum sem labbi í miðbænum og hann ekki alltaf þrifinn upp.
„Mér finnst þetta svo sorglegt. Að það megi ekki gera neitt sem fer aðeins aftur í hefðirnar - það var riðið á hestum í Reykjavík fyrir ekkert svo löngu síðan ef maður hugsar um það,“ segir Linda.
Hún segir um fallega hefð að ræða og ekki megi gleyma að miðbæjarreiðin er mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
„Við fáum mikil viðbrögð frá ferðamönnum. Fólk hópast niðri í bæ til að sjá hestinn og við leyfum fólki að klappa og svona. Ímynd hestsins er hluti af ímynd Íslands.
Borgin er alla vega að græða á þessum viðburði því hann fær fólk niður í bæ. Verslunareigendur eru mjög ánægðir með þetta framtak og finnst það eitt af hápunktum sumarkomunnar.“
Formaðurinn furðar sig á ákveðnu ósamræmi hjá Reykjavíkurborg sem birtist í því að Landssamband hestamanna hefur unnið með Húsdýragarðinum í kringum 1. maí-dagskrá en garðurinn er í eigu borgarinnar. Samt sem áður vilji borgin ekki taka þátt í þeirri áratuga gömlu hefð sem miðbæjarreiðin er.