Tveir menn dæmdir fyrir innflutning fíkniefna

Báðir sakborningar voru dæmdir fyrir innfluttning á kókaíni í ferðatöskum.
Báðir sakborningar voru dæmdir fyrir innfluttning á kókaíni í ferðatöskum. Ljósmynd/Colourbox

Fyrr í dag féllu tveir dóm­ar í Héraðsdómi Reykja­ness í tveim­ur aðskild­um mál­um er varða inn­flutn­ing á kókaíni til lands­ins. Í báðum til­fell­um voru sak­born­ing­ar dæmd­ir til 30 mánaða fang­elsis­vist­ar.

Í fyrra mál­inu var maður á fer­tugs­aldri sem er er­lend­ur rík­is­borg­ari sak­felld­ur fyr­ir stór­felld fíkni­efna­laga­brot en hann var hand­tek­inn 3. mars fyr­ir inn­flutn­ing á 1,97 kíló­um af kókaíni til lands­ins.

Efn­in fund­ust fal­in í ferðatösku manns­ins er hann flaug frá Par­ís í Frakklandi til Kefla­vík­ur. Styrk­leiki efn­is­ins var 83% og var því ætlað til dreif­ing­ar og sölu hér á landi.

Maður­inn var dæmd­ur í 30 mánaða fang­elsi auk þess sem hon­um er gert að greiða 1.391.936 krón­ur í saka­kostnað.

Flaug frá Spáni

Í seinna mál­inu var maður á þrítugs­aldri, sem sömu­leiðis er er­lend­ur rík­is­borg­ari, einnig sak­felld­ur fyr­ir stór­felld fíkni­efna­laga­brot en sá hafði falið 2,87 kíló af kókaíni í ferðatösku sinni er hann flaug til lands­ins frá Madríd á Spáni 10 apríl.

Styrk­leiki efn­is­ins var á bil­inu 52-54% og var því ætlað til dreif­ing­ar og sölu hér­lend­is.

Var maður­inn dæmd­ur í 30 mánaða fang­elsi og gert að greiða 1.469.583 krón­ur í sak­ar­kostnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert