1.062 íbúðir í byggingu í Hafnarfirði

Nýbyggingar reistar og allt að gerast. Fjær sést Skarðshlíðin. Hraði …
Nýbyggingar reistar og allt að gerast. Fjær sést Skarðshlíðin. Hraði framkvæmda fylgir stöðu efnahagsmála, segir bæjarstjórinn. mbl.is/Sigurður Bogi

Góður gang­ur er um þess­ar mund­ir við bygg­ingu íbúðahús­næðis í Hafnar­f­irði. Í Hamra­nes­hverfi má sjá fjölda húsa á bygg­ing­arstigi og sitt seg­ir um stöðu mála hve vinnu­vél­ar og kran­ar eru áber­andi í um­hverf­inu þar. Að því er fram kem­ur á mæli­borði á vef Hús­næðis- og mann­virkja­stofn­un­ar eru nú 1.062 íbúðir í bygg­ingu í Hafnar­f­irði og nærri 90% af þeim eru í fjöl­býli; marg­ar 80-100 fer­metr­ar að stærð.

Hamra­nes er smám sam­an að öðlast heild­stæðan svip, enda er upp­bygg­ing þar langt kom­in. Leik­skóli þar er til­bú­inn og í haust hefjast fram­kvæmd­ir við bygg­ingu grunn­skóla í hverf­inu. Börn úr hverf­inu hafa sótt nám í Hraun­valla- og Skarðshlíðarskóla en á haust­dög­um næsta árs verður fyrsti áfangi nýja skóla­húss­ins tek­inn í notk­un.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert