Mestur hiti á landinu í dag mældist 25,1 stig við Stafholtsey í Borgarfirði.
Hæsti hiti í Reykjavík mældist 20,4 stig og munaði því aðeins að 0,2 stigum að hitamet maímánaðar frá 1960 yrði slegið.
Víða mældist hiti þó hlýrri en í Reykjavík, en hann mældist mest 21,8 stig í Garðabæ og 22,7 stig í Víðidal.
Um er þó að ræða óyfirfarnar hitatölur sem gætu breyst lítillega.
Að sögn Þorsteins V. Jónssonar, vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, hefur hæð ríkt að undanförnu yfir Færeyjum sem hefur haldið frá öllum lægðum og borið hlýtt loft að sunnan yfir landið.
Það komi þó til með að breytast lítillega á næstu dögum að sögn Þorsteins.
Kólna tekur þó að áfram verði hlýtt í veðri en nú sæki þokuloft að landinu sunnan og vestanverðu.
Á fimmtudaginn sé svo von á suðaustanátt með rigningu.