Þrír einstaklingar réðust á ungan mann með höggum og spörkum í Árbænum. Árásaraðilarnir flúðu á brott og er málið í rannsókn.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem greint er frá verkefnum lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.
Þá var maður handtekinn eftir að hafa slegið ungmenni. Maðurinn reyndist ölvaður og var vistaður í fangaklefa.
Tilkynnt var um mann sem hafði kastað glerglasi í annan mann í miðbæ Reykjavíkur. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Brotaþoli hlaut minniháttar áverka.
Lögregla var með virkt eftirlit við vínbúð. Rúmlega 100 ökumenn voru látnir blása, tveir ökumenn blésu yfir refsimörkum og voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis. Einn ökumaður blés undir refsimörkum og honum var gert að hætta akstri.
Þá var lögreglu tilkynnt um ökumann sem hafði ekið bifreið sinni á aðra bifreið og síðan ekið á brott. Ökumaðurinn fannst í nágrenni og er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Einnig var ökumaður stöðvaður sem var með nagladekk undir bifreið sinni. „Hann á von á vænlegri sekt enda 20.000 króna sekt fyrir hvern negldan hjólbarða,“ segir í dagbók lögreglu. Þá reyndist maðurinn jafnframt hafa neytt áfengis en blés þó undir refsimörkum og var því gert að hætta akstri.