Miðbærinn eyðilagður fyrir litlum verslunarmönnum

Íslendingar kannast margir hverjir við köttinn Baktus sem á nú …
Íslendingar kannast margir hverjir við köttinn Baktus sem á nú að flytja á Granda ásamt versluninni Gyllta kettinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Mér finnst þetta mjög sárt en þetta er bara eitt­hvað sem maður verður að gera ef rekst­ur­inn á að lifa af,” seg­ir Haf­dís Hjör­leifs­dótt­ir sem rekið hef­ur versl­un­ina Gyllta kött­inn í miðbæ Reykja­vík­ur ásamt eig­in­manni sín­um, Hauki Inga Jóns­syni, í 20 ár.

Nú stend­ur til að flytja rekst­ur­inn af Aust­ur­stræti á Fiskislóð á Granda en Haf­dís seg­ir ástæðuna vera að borg­ar­yf­ir­völd hafi eyðilagt miðbæ­inn.

„Þetta er búið að blunda í okk­ur í tölu­verðan tíma, alla­vega í tvö ár, því Dag­ur [B. Eggerts­son], fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, er bara bú­inn að eyðileggja borg­ina,” seg­ir Haf­dís í sam­tali við mbl.is og bæt­ir við:

„Ég er búin að vera þarna í 20 ár og hef bara séð þetta fara versn­andi og versn­andi. Þá erum við að tala um bíla­stæði og all­ar þess­ar hindr­an­ir, þess­ar göngu­göt­ur. Það er ekki eins og við séum á Spáni.”

 

„Við höf­um ekk­ert í þetta að sækja“

Haf­dís hef­ur síðustu ár horft upp á marga aðra versl­un­ar­eig­end­ur í miðbæn­um taka sam­bæri­leg­ar ákv­arðanir um að annaðhvort flytja rekst­ur­inn eða hætta hon­um.

„Lauga­veg­ur­inn er orðinn túrista­búðir og veit­ingastaðir, við heyr­um þetta bara frá túrist­un­um, þeir spyrja „hvar er miðbær­inn?“ Og Íslend­ing­arn­ir segja „við höf­um ekk­ert í þetta að sækja, að koma niður í bæ“,” seg­ir Haf­dís og bæt­ir við:

„Þegar ég var að byrja var til dæm­is apó­tek, póst­hús, banki, nærfata­búð og skó­búð. Þú gast rölt um í bæn­um.“

Ekki einu sinni fyr­ir ferðafólk

Spurð hvort miðbær­inn sé í dag frek­ar hugsaður fyr­ir ferðafólk en heima­menn seg­ir Haf­dís:

„Hann er varla hugsaður fyr­ir ferðafólk, hann er ekki hugsaður fyr­ir neitt nema út frá ein­hverju hjólaæði hjá Degi. Það er eins og það sé vilja­verk að eyðileggja fyr­ir litl­um versl­un­ar­mönn­um sem eru og hafa verið á Lauga­veg­in­um.“

Spurð hvort Grandi, þar sem að Gyllti kött­ur­inn verður nú til húsa, sé þá ef til vill að breyt­ast í ein­hvers kon­ar miðstöð fyr­ir versl­un og þjón­ustu á svæðinu seg­ir Haf­dís:

„Hæg­ar held­ur en fólk taldi að það myndi ger­ast en þetta verður betra.”

Í þessu sam­hengi nefn­ir hún að fyr­ir skömmu hafi Gyllti kött­ur­inn staðið fyr­ir lag­er­sölu í hús­næðinu úti á Granda sem að þau hafa þegar til umráða og að hún hafi gengið fram­ar von­um. Það hafi í raun verið lokastráið þegar kom að því að taka ákvörðun um flutn­ing­inn.

Maður skil­ur barnið sitt ekki eft­ir

Það verða held­ur bet­ur sjón­ar­svipt­ir af Gyllta kett­in­um í miðbæn­um og eiga marg­ir ef­laust eft­ir að sakna, ekki bara versl­un­ar­inn­ar sjálfr­ar, held­ur líka katt­ar­ins Baktus­ar sem hef­ur búið í henni í 15 ár.

Haf­dís og Hauk­ur ætla að reyna að flytja hann með á Fiskislóð en hafa áhyggj­ur af hvernig það fer.

„Mesta áskor­un­in verður Bakt­us, við ætl­um nátt­úru­lega að reyna allt sem við get­um til að taka hann með. Hann á eft­ir að fara nokkr­um sinn­um niður í bæ en við setj­um á hann tracker til að fylgj­ast með hon­um. Kannski verður hann nýi Bónu­skött­ur­inn, maður veit það ekki,” seg­ir Haf­dís og bæt­ir við:

„Kett­ir fara sín­ar eig­in leiðir og ég hef mikl­ar áhyggj­ur af því en maður skil­ur ekki barnið sitt eft­ir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert