Netsvikarar stolið um 100 milljónum á tveimur mánuðum

Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi

Tölvuþrjót­ar og aðrir óprúttn­ir ein­stak­ling­ar hafa frá því í mars á þessu ári haft um 100 millj­ón­ir króna af fólki og fyr­ir­tækj­um hér á landi. Af því til­efni vill Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu brýna sér­stak­lega fyr­ir fólki að vera á varðbergi gegn til­raun­um svik­ar­anna við að hafa fé af fólki.

Í Face­book-færslu seg­ir að al­gengt sé að svik­ar­arn­ir sendi tölvu­pósta og skila­boð til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja, ásamt því sem fyr­ir­tæki fái einnig senda falsaða reikn­inga. Þá ber­ast sím­töl frá síma­núm­er­um sem líta út fyr­ir að vera ís­lensk, en geta verið frá brota­mönn­um og því sé full ástæða til að vara við öll­um slík­um gylli­boðum sem þau kunna að inni­halda.

Þá seg­ir lög­regl­an mik­il­vægt að hafa í huga að ef eitt­hvað er of gott til að vera satt, þá sé það lík­lega raun­in að um svik sé að ræða. 

Herja á fólk á öll­um víg­stöðvum

Lög­regl­an hef­ur einnig heim­ild­ir fyr­ir því að iðulega sé haft sam­band við fólk og því boðin „aðstoð“ við kaup á raf­mynt­um eða upp­setn­ingu á for­rit­inu Anydesk í síma eða tölv­ur.

Lög­regla var­ar sér­stak­lega við slíku enda sé með því verið að bjóða svindl­ur­un­um inn á raf­tæk­in.

Sömu­leiðis séu dæmi um að ít­rekað sé hringt í fólk, þegar svindlar­arn­ir hafa þegar kom­ist inn í snjall­tæki fólks í þeim til­gangi að „aðstoða við end­ur­heimt þeirra“. Þar sé þó um að ræða fram­hald sama svindls og því ein­dregið varað við því að fólk falli fyr­ir slíku.

Nýta sér hörmu­legt ástand á Gasa 

Lög­regl­an sér einnig ríkt til­efni til að vara við ein­stak­ling­um, sem í gegn­um skila­boð eða sím­tal, bjóða fram aðstoð sína og vilja fá fólk til að deila skjá í tölvu eða öðru tæki með viðkom­andi, en það kall­ast ,,screen-shar­ing“.

Með þeirri aðferð kom­ist svik­ar­inn yfir mikl­ar upp­lýs­ing­ar og fái mögu­lega aðgang að tölvu­pósti, heima­banka o.s.frv. með til­heyr­andi tjóni fyr­ir viðkom­andi.

Loks seg­ir lög­regl­an að borið hafi á því að verið sé að nýta bág­indi fólks, s.s. fjársafn­an­ir fyr­ir ein­stak­linga sem eru sagðir vera frá Gasa, en allt séu það ekk­ert nema svik og prett­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert