Rithöfundar vilja lög um gervigreind

Meta.
Meta. AFP

Íslensk stjórn­völd þurfa að flýta laga­setn­ingu um notk­un gervi­greind­ar við gerð hug­verka til að tryggja að hag­nýt­ing á verk­um rit­höf­unda í gervi­greind­ar­kerf­um eigi sér aðeins stað með skýru samþykki og gegn sann­gjarnri greiðslu.

Þetta kem­ur fram í álykt­un aðal­fund­ar Rit­höf­unda­sam­bands ís­lands sem var hald­inn í lok apríl.

Sam­bandið skor­ar einnig á op­in­ber­ar stofn­an­ir og einka­fyr­ir­tæki að nýta ekki gervi­greind við lausn verk­efna sem áður hafa verið á verksviði lista­manna og höf­unda „og taka þannig ekki þátt í at­lögu gegn mann­legri sköp­un og mögu­leik­um lista­manna til að afla sér lífsviður­vær­is með sköp­un sinni”.

Sömu­leiðis for­dæm­ir Rit­höf­unda­sam­band Íslands ákvörðun Meta um að nýta hug­verk, þar á meðal eft­ir ís­lenska höf­unda, án heim­ild­ar, til þró­un­ar á gervi­greind­ar­for­riti. Slíkt feli í sér til­vist­ar­lega aðför að list­sköp­un og ritstörf­um.

Einnig for­dæm­ir sam­bandið hug­mynd­ir, m.a. frá Bretlandi, um að veita tæknifyr­ir­tækj­um óheft­an aðgang að hug­verk­um í sam­bæri­leg­um til­gangi án skýrs samþykk­is lista­manna í hverju til­viki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert