Slæmt að hafa ábyrgð en engin völd

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélag Íslands.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélag Íslands. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Colourbox

„Ég held að það sé klár­lega af hinu góða að vera með ólík rekstar­form. Ég held að það sé ekki gott að all­ur rekst­ur­inn sé á einni hendi og ég held að það að það séu einka­rekn­ar heilsu­gæslu­stöðvar hérna veiti op­in­bera kerf­inu bara gott aðhald,” seg­ir Stein­unn Þórðardótt­ir, formaður Lækna­fé­lags­ins, spurð hvort að einka­rekst­ur sé eitt­hvað sem horfa megi til í rík­ara mæli þegar það kem­ur að því að vinna á þeim vanda sem rík­ir inn­an heilsu­gæsl­unn­ar í land­inu.

Hún legg­ur áherslu á mik­il­vægi þess að hlustað verði á heim­il­is­lækna þegar kem­ur að því að vinna að úr­bót­um á kerf­inu og hvet­ur fólk í land­inu til að láta í sér heyra þegar það rekst á brota­lam­ir inn­an þess.

Stein­unn gerði stöðu heilsu­gæsl­unn­ar að um­tals­efni í skoðanap­istli á Vísi um helg­ina þar sem hún ræddi hvernig lækn­ar í dag hafi ekki svig­rúm til að sinna for­vörn­um og koma í veg fyr­ir lang­vinna sjúk­dóma eins og þeir myndu vilja. Bið eft­ir tím­um sé mjög löng og erfitt geti verið að kom­ast að hjá heim­il­is­lækni ef vanda­málið er ekki mjög brýnt.

„Af ýms­um ástæðum fer stór hluti tíma lækna í að slökkva elda, í stað þess að koma í veg fyr­ir að þeir kvikni til að byrja með,” skrifaði Stein­unn.

„Þetta er tvö­fald­ur vandi“

Stein­unn ræddi stöðu heim­il­is­lækn­inga og heilsu­gæslu í land­inu við mbl.is en hún seg­ir vanda­málið inn­an kerf­is­ins í raun tvíþætt.

„Bæði erum við ekki að nýta heim­il­is­lækn­ana okk­ar rétt eða skil­virkt og á sama tíma eru þeir klár­lega of fáir. Þannig þetta er tvö­fald­ur vandi,” seg­ir Stein­unn og bæt­ir við:

„Á meðan heim­il­is­lækn­ar eru ekki fleiri er mjög blóðugt að fara ekki bara í gagn­gera end­ur­hugs­un á því hvernig við for­gangs­röðum þeirra starfs­kröft­um.”

Í þessu sam­hengi bend­ir hún á að mik­ill tími hjá heim­il­is­lækn­um fari í ýmsa papp­írs­vinnu og skriffinnsku og að þegar til­raun­ir hafi verið gerðar til að efla heilsu­gæsl­una í gegn­um tíðina hafi áhersl­an yf­ir­leitt verið á „eyrna­merkt sér­verk­efni“ frek­ar en á að styrkja grund­vall­ar­starf heilsu­gæsl­unn­ar.

Einkareknar stöðvar hafa komið best út úr ánægjukönnunum.
Einka­rekn­ar stöðvar hafa komið best út úr ánægju­könn­un­um. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Ekki gott ef það er bara einn þjón­ustu­veit­andi

Sam­kvæmt gæða- og þjón­ustu­könn­un­um sem gerðar hafa verið fyr­ir Sjúkra­trygg­ing­ar Íslands síðustu ár hef­ur komið í ljós að ánægja skjól­stæðinga heilsu­gæslu­stöðvanna á höfuðborg­ar­svæðinu fer minnk­andi.

Mest mæl­ist ánægj­an þó meðal skjól­stæðinga einka­rek­inna stöðva en árið 2024 röðuðu einka­rekn­ar stöðvar sér í fjög­ur efstu sæt­in þegar spurt var út í ánægju skjól­stæðinga.

Spurð hvort horfa ætti í rík­ara mæli til einka­rek­inna stöðva til að bæta þjón­ustu inn­an heilsu­gæsl­unn­ar seg­ir Stein­unn:

„Ég held að það sé klár­lega af hinu góða að vera með ólík rekstr­ar­form. Ég held að það sé ekki gott að all­ur rekst­ur­inn sé á einni hendi og ég held að það að það séu einka­rekn­ar heilsu­gæslu­stöðvar hér veiti op­in­bera kerf­inu bara gott aðhald.

Það er ekki gott að það sé bara einn þjón­ustu­veit­andi og þar með talið einn at­vinnu­veit­andi fyr­ir heil­brigðis­starfs­fólk. Það að hafa fleiri en eitt rekstr­ar­form er að mínu mati af hinu góða fyr­ir alla.”

„Fólkið á gólf­inu kann að reka þjón­ust­una“

Þá bend­ir Stein­unn á að lækn­ar sem starfi inn­an einka­rek­inna heilsu­gæslu­stöðva upp­lifi að þeir fái meira sjálfræði og að það sé af hinu góða.

„Fólkið á gólf­inu kann að reka þjón­ust­una sem það er að veita,” seg­ir Stein­unn.

Í ýms­um ná­granna­ríkj­um Íslands, meðal ann­ars Dan­mörku, tíðkast að heim­il­is­lækn­ar séu með meira sjálfræði en al­mennt geng­ur og ger­ist á Íslandi, en þar reka þeir gjarn­an eig­in stof­ur með samn­ingi við ríkið. Spurð hvort að þetta sé eitt­hvað sem horfa megi til seg­ir Stein­unn:

„Í þessu sam­hengi tel ég mjög af hinu góða að bæði ábyrgðin á rekstr­in­um og ákv­arðan­irn­ar sem tekn­ar eru um það hvernig hlut­irn­ir séu rekn­ir séu á hönd­um lækn­anna sjálfra. Það er mjög slæmt að bera ábyrgð en hafa eng­in völd yfir því hvernig hlut­irn­ir eru gerðir.

Í Dan­mörku er ein­mitt mjög löng reynsla af því að lækn­ar reki sjálf­ir heilsu­gæsl­ur, og það kem­ur mörg­um á óvart, að Ísland er eitt af þeim lönd­um í heim­in­um sem eru með minnst af einka­rekstri í heil­brigðis­kerf­inu. Hlut­falls­lega er rosa­lega lít­ill einka­rekst­ur hérna. Lang­mest af heil­brigðisþjón­ustu er af op­in­berri hendi og við erum með mjög miðstýrt kerfi. Þannig það að einka­rekst­ur sé hérna vaðandi uppi er bara kolrangt.

Á meðan við gæt­um þess að all­ir hafi aðgang að þjón­ust­unni óháð efna­hag og að það séu gerðir samn­ing­ar við þessa aðila af hálfu sjúkra­trygg­inga þá sé ég ekki vanda­málið við einka­rekst­ur­inn.”

„Við viljum svo sannarlega veita betri þjónustu og geta sinnt …
„Við vilj­um svo sann­ar­lega veita betri þjón­ustu og geta sinnt ýmsu eins og for­vörn­um bet­ur en við ger­um í dag,” seg­ir Stein­unn.

Má láta í sér heyra

Í fyrr­nefnd­um skoðanap­istli á Vísi talaði Stein­unn um að ís­lenska þjóðin hefði ef til vill sýnt ein­um of mikið lang­lund­ar­geð og þolgæði þegar kem­ur að aðgeng­is­mál­um í heil­brigðis­kerf­inu.

Spurð hvort hún telji meiri þrýst­ing þurfa frá al­menn­ingi til þess að stjórn­völd taki al­menni­lega til hend­inni mál­flokkn­um seg­ir Stein­unn svo vera.

„Ég tel klár­lega að það þurfi meiri þrýst­ing. Nú erum við nátt­úru­lega með til­tölu­lega nýja rík­is­stjórn sem að hef­ur lagt áherslu á mál­efni heilsu­gæsl­unn­ar og ég vona að hún muni standa við þær áhersl­ur og það kem­ur þá von­andi sem allra fyrst í ljós,” seg­ir Stein­unn og bæt­ir við:

„Maður heyr­ir svo ofboðslega mikið frá fólki úti í bæ um alls kon­ar erfiðleika við að fá þjón­ustu sem ætti bara að vera mjög ein­föld og hvers­dags­leg og maður er svo­lítið hissa á því að fólk skuli ekki láta meira í sér heyra.

Það eru ein­staka ein­stak­ling­ar sem gera það og þá er eft­ir því tekið. Ég held að fólk megi vera dug­legra við það og þá bara taka und­ir með okk­ur.”

„Við vilj­um svo sann­ar­lega veita betri þjón­ustu og geta sinnt ýmsu eins og for­vörn­um bet­ur en við ger­um í dag,” seg­ir Stein­unn að lok­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert