Svalara loft í augsýn

Veður hefur verið með besta móti um allt land seinustu …
Veður hefur verið með besta móti um allt land seinustu daga. mbl.is/Eyþór

„Það er út­lit fyr­ir að í lok vik­unn­ar fari hlý­indi að hörfa. Margt bend­ir svo til þess að sval­ara loft verði í næstu viku, ekk­ert bend­ir til annarr­ar hita­bylgju að minnsta kosti.“

Þetta seg­ir Birg­ir Örn Hösk­ulds­son, veður­fræðing­ur hjá Veður­stofu Íslands, í sam­tali við mbl.is. 

Hæð beint yfir land­inu

Veðrið sein­ustu daga hef­ur verið með besta móti um allt land. Birg­ir seg­ir að sér­stak­ar aðstæður þurfi að vera til staðar til þess að veður sé svo gott um land allt. 

„Það er hæð sem hef­ur verið yfir Fær­eyj­um síðastliðna daga en þessa stund­ina er þessi hæð bara beint yfir Íslandi. Vana­lega þegar það eru hlý­indi hér­lend­is þá er hæð yfir Bret­lands­eyj­um og þarf þá loftið að ferðast langa leið til okk­ar og nær að kólna ör­lítið á leiðinni. Nú fær heita loftið í raun ekki tæki­færi til þess að kólna neitt,“ bæt­ir Birg­ir við.

Breyt­ing í kort­un­um

Birg­ir seg­ir að út­lit sé fyr­ir að veðrið haldi áfram að leika við lands­menn næstu daga en að ákveðin breyt­ing þar á sé í kort­un­um síðdeg­is á fimmtu­dag. 

„Síðdeg­is á fimmtu­dag og í fram­hald­inu eru lík­ur á því að það verði frem­ur vætu­samt og hita­stigið verður nær venju­legu hita­stigi maí­mánaðar.“

Þriðja hæsta hita­stig frá upp­hafi

Greint var frá því í gær að hæsta hita­stig sem mæld­ist þann dag­inn á land­inu hafi verið 25,1 gráða í Staf­holts­ey í Borg­ar­f­irði. 

Upp­sveit­ir Borg­ar­fjarðar eru að sögn Birg­is ekki óþekkt­ar slóðir fyr­ir hátt hita­stig en hann bæt­ir þó við að síðustu ár hafi hita­töl­ur yf­ir­leitt verið hæst­ar á Norður- eða Aust­ur­landi. 

Ein­ar Svein­björns­son, ann­ar veður­fræðing­ur sem mbl.is ræddi við, seg­ir þetta þriðja hæsta hita­stig sem mælst hef­ur í Staf­holts­ey frá upp­hafi mæl­inga. 

„Það hef­ur verið mæld­ur hiti þar í 37 ár og þetta er lang­hæsti hiti sem mælst hef­ur þar í maí. Það hef­ur bara mælst hærri hiti þar tvisvar sinn­um áður, það er í ág­ust 2004 og í júlí 1991,“ seg­ir Ein­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert