Tali íslensku til að fá starfsleyfi

Helga Rósa Másdóttir var kjörin formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á …
Helga Rósa Másdóttir var kjörin formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á aðalfundi félagsins síðastliðinn fimmtudag. mbl.is/Eyþór

„Spurn­ing­in er, hvernig vilj­um við hafa heil­brigðis­kerfið okk­ar? Vilj­um við ekki geta farið inn á sjúkra­hús og hitt fólk sem tal­ar ís­lensku? Ætla stjórn­völd að draga ein­hverj­ar lín­ur? Ætla þau að hafa ein­hver gæðaviðmið?“ spyr Helga Rósa Más­dótt­ir, nýr formaður Fé­lags ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræðinga.

Fé­lagið skor­ar á stjórn­völd að krefjast ís­lenskukunn­áttu hjá hjúkr­un­ar­fræðing­um af er­lendu þjóðerni til að þeir geti öðlast starfs­leyfi. Álykt­un þess efn­is var samþykkt á aðal­fundi fé­lags­ins fyr­ir helgi.

Starf­andi hjúkr­un­ar­fræðing­um af er­lendu þjóðerni hef­ur fjölgað úr 6% í 11% á síðustu þrem­ur árum. Í fyrra var tæp­lega þriðjung­ur hjúkr­un­ar­leyfa frá embætti land­lækn­is veitt­ur hjúkr­un­ar­fræðing­um af er­lendu þjóðerni. Stærsti hluti hjúkr­un­ar­fræðinga sem leita hingað er frá Fil­ipps­eyj­um.

Nán­ari um­fjöll­un má finna í Morg­un­blaðinu í dag. Einnig má nálg­ast hana án end­ur­gjalds í Mogg­an­um, nýju appi Morg­un­blaðsins og mbl.is.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert