Tómas skipaður varadómari

Tómas Hrafn Sveinsson.
Tómas Hrafn Sveinsson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dóms­málaráðherra hef­ur skipað Tóm­as Hrafn Sveins­son í embætti vara­dóm­anda við End­urupp­töku­dóm frá og með 12. maí 2025 til og með 29. fe­brú­ar 2028. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá ráðuneyt­inu.

Þar seg­ir sömu­leiðis að Tóm­as hafi lokið embætt­is­prófi frá laga­deild Há­skóla Íslands árið 2006 og diplóma­námi í góðum stjórn­ar­hátt­um frá rann­sókn­ar­miðstöð um stjórn­ar­hætti við sama skóla árið 2016.

Tóm­as Hrafn öðlaðist rétt­indi til mál­flutn­ings fyr­ir héraðsdómi árið 2007 og fyr­ir Hæsta­rétti Íslands 2013. Árin 2007 til 2022 starfaði hann sem lögmaður og gegndi sam­hliða starfi for­manns barna­vernd­ar­nefnd­ar Reykja­vík­ur frá 2015 til árs­loka 2022.

Frá 1. janú­ar 2023 hef­ur Tóm­as Hrafn starfað sem formaður um­dæm­is­ráðs Barna­vernd­ar Reykja­vík­ur. Af öðrum störf­um má nefna að hann var vara­formaður kær­u­nefnd­ar út­lend­inga­mála 2021-2023 og hef­ur verið stjórn­ar­formaður Mennta­sjóðs náms­manna frá fe­brú­ar 2025.

Þá hef­ur Tóm­as Hrafn setið í yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík vegna for­seta-, alþing­is- og borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Að auki gegndi hann stunda­kennslu við laga­deild Há­skóla Íslands 2009-2013 og hef­ur frá þeim tíma gegnt stöðu aðjúnkts við sömu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert