Víða léttskýjað og hitinn gæti náð 23 stigum

Það var þétt setinn bekkurinn á og við Austurvöll í …
Það var þétt setinn bekkurinn á og við Austurvöll í veðurblíðunni í Reykjavík í gær. mbl.is/Hákon

Í dag verður hæg breyti­leg átt eða haf­gola. Víða verður létt­skýjað en sum staðar þoku­loft við strönd­ina og til að mynda var svartaþoka yfir höfuðborg­ar­svæðinu nú í morg­uns­árið.

Hit­inn á land­inu í dag verður á bil­inu 10 til 23 stig að deg­in­um, hlýj­ast inn til lands­ins, en sval­ast í þoku­loft­inu.

Á morg­un er spáð svipuðu veðri. Víða verður létt­skýjað en áfram þoku­loft við sjáv­ar­síðuna. Hit­inn verður á bil­inu 10 til 22 stig og verður hlýj­ast inn til lands­ins.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert