Framkvæmdir í Árbæjarlaug með þau yngstu í fyrirrúmi

Árbæjarlaug er lokuð vegna viðhalds.
Árbæjarlaug er lokuð vegna viðhalds. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sól­in hef­ur skinið á Íslend­inga síðustu daga og land­inn flykkst í sund. Íbúar í Árbæn­um þurfa hins veg­ar að leita lengra en vana­lega fyr­ir sund­sprett­inn því Árbæj­ar­laug er lokuð næstu tvær vik­ur.

Nú standa yfir um­tals­verðar fram­kvæmd­ir í Árbæj­ar­laug. Um er að ræða al­mennt viðhald og breyt­ing­ar á vaðlaug. Laug­in verður opnuð aft­ur 4. júní. 

Vala Bjarney Gunn­ars­dótt­ir, for­stöðukona Árbæj­ar­laug­ar, seg­ir fram­kvæmd­irn­ar ganga vel. Hún seg­ir tví­eggja sverð að fara í fram­kvæmd­ir þegar veðrið sé svona gott. Það auðveldi vinn­una en hún sé með sam­visku­bit gagn­vart fólki sem vilji kom­ast í sund. 

Bæta á aðgengi fyr­ir yngri börn í vaðlaug­inni með því að breyta botn­in­um á laug­inni sem nú er í halla. Rétta á botn­inn af og gera laug­ina grynnri og heit­ari sem á að auðvelda yngri börn­um að leika sér og ganga í sund­laug­inni.

Þessi langa viðhalds­lok­un skýrist af því að all­ar laug­ar Árbæj­ar­laug­ar eru tengd­ar sam­an. Þar af leiðandi þarf að tæma all­ar laug­ar þegar fram­kvæmd­ir standa yfir. 

Seinna á að leggja flís­ar á botn­inn í vaðlaug­inni og koma fyr­ir leik­tækj­um sem henta yngri börn­um.

Fram­kvæmd­ir á vaðlaug­inni eru unn­ar í gegn­um verk­efnið Hverfið mitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert