Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur komist að þeirri niðurstöðu að kjötvinnsla í húsnæðinu við Álfabakka 2A, jafnan kallað græna gímaldið, sé í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir á svæðinu.
Þetta kemur fram í umsögn skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar vegna umsóknar um breytingu á byggingarleyfi húsnæðisins. Það er Borghildur Sölvey Sturludóttir sem kvittar undir umsögnina.
Lagt hafði verið til breytingar á vöruhúsinu þar sem fyrirhuguð kjötvinnsla yrði minnkuð og að netverslun myndi fara fram í hluta húsnæðisins. Er það mat Borghildar að starfsemi hvoru tveggja sé í samræmi við gildandi ákvæði aðalskipulags og deiliskipulags borgarinnar.
Það er fyrirtækið Fersk kjötvara sem áformar að hýsa kjötvinnslu sína í Álfabakka 2A. Sú starfsemi felur í sér móttöku á kjöti, vinnslu þess, pökkun og dreifingu í verslanir. Starfsemin tekur til um 3.000 fermetra á fyrstu hæð í vesturenda húsnæðisins.
„Kjötvinnsla sem veldur óverulegum umhverfisáhrifum og annar sambærilegur þrifalegur iðnaður, á takmörkuðum hluta viðkomandi svæðis og/eða hluta viðkomandi byggingar, er talin geta samræmst gildandi heimildum aðalskipulags Reykjavíkur 2040,“ segir meðal annars í umsögn skipulagsfulltrúans.
Víkur Borghildur að útliti vöruhússins en íbúar í nærliggjandi húsum hafa mótmælt vöruhúsinu vegna nálægðar þess við íbúðabyggð.
„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi – löggjöfin spyr hvorki um fagurfræði né samhengi. Það er því sorgleg staðreynd að þeir sem fara með völd, fjármagn og fyrirferðarmikinn rekstur skuli ekki sýna frekari metnað í uppbyggingu á miðsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Fagurfræði er ekki smekkur – fagurfræði er samhengi – og þessa byggingu skortir slíkt,“ segir þar jafnframt.