Logi Einarsson, ráðherra háskólamála, hefur skipað Silju Báru R. Ómarsdóttur rektor Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Hann afhenti henni skipunarbréf þessa efnis föstudaginn síðastliðinn.
Silja Bára er prófessor í alþjóðasamskiptum við stjórnmálafræðideild á félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Hún vann í rektorskjöri háskólans sem fór fram í mars. Bæði starfsfólk og nemendur skólans höfðu atkvæðarétt.
Silja Bára tekur við embætti þann 1. júlí. Hún tekur við af Jóni Atla Benidiktssyni en hann hefur gengt embættinu frá árinu 2015.
Silja Bára hefur starfað við Háskóla Íslands í um tvo áratugi og á þeim tíma gert fjölda rannsókna. Hún lauk meistara- og BA-prófi í Bandaríkjunum og doktorsprófi á Írlandi.